Margir af merkustu atburðum Sturlungu gerðust í ríki Ásbirninga í Skagafirði. Árið 1246 var háð mannskæðasta orrusta þessara tíma að Haugsnesi þar sem Þórður kakali frændi minn atti kappi við Brand Kolbeinsson og hafði frækinn sigur. Um eitt þúsund manns mættust í Haugsnesbardaga og yfir eitt hundrað féllu. Nokkrum árum síðar 1253 gerðust nokkrir Sturlungar boðflennur í brúðkaupi að Flugumýri til að drepa Gissur Þorvaldsson. Þeim tókst að brenna bæinn og drepa fjölda manns en Gissur slapp við illan leik.
Fleiri stórviðburðir sögunnar gerðust á þessum slóðum. Skagfirðingar hafa reist upplýsingaskilti á víð og dreif til að halda þessari sögu á lofti. Enginn hefur þó verið ötulli að reisa minnisvarða um Sturlungu en Sigurður Hansen að Kringlumýri sem liggur miðja vegu milli Flugumýrar og Haugsness. Hann hefur byggt líkan af bardagavellinum úr stórum steinum sem eru jafnmargir bændunum sem komu saman til að berjast og deyja þennan örlagaríka dag. Í gömlu minkabúi hefur hann byggt upp Kakalaskála þar sem Gissur jarl og Þórður kakali birtast í fjölda listaverka og safngripa. Sigurður hefur líka haft forgöngu að sérstöku vefnámskeiði um Sturlungu sem finna má á heimasíðu skálans.
Íslendingasögur og Sturlunga eru merkileg bókmenntaverk. Sagan varðveitist best í sínu eðlilega umhverfi. Náttúran sjálf hefur lítið breyst í aldanna rás og sömu fjöll voma yfir sögustöðunum. Ég hef gengið með Sigurði Hansen um bardagavöllinn að Haugsnesi og heyrt hann tala við steinana sem bera nöfn þeirra sem söfnuðust hér saman endur fyrir löngu. Sagan kviknaði til lífs og steinarnir svöruðu ávarpi meistara síns. „Við þráðum allir að lifa en forlögin vísuðu okkur annað.“ Þetta listaverk er áhrifamikið ákall um frið í stríðshrjáðum heimi á hátíð friðar og upprisu.