„Hann er reyndari, fyrirsjáanlegri, stjórnmálamaður af gamla skólanum. En við munum vinna með hverjum þeim forseta Bandaríkjanna sem Bandaríkjamenn bera traust til,“ sagði Pútín.
Donald Trump, sem mun væntanlega takast á við Biden um forsetaembættið, var fljótur að grípa þetta á lofti og sagði þetta vera hrós frá Pútín. „Hann vill fá Biden því þá fær hann allt sem hann vill, þar á meðal Úkraínu. Eini forsetinn af síðustu fimm, sem ekki hefur gefið Rússlandi neitt, er forseti sem heitir Donald J. Trump,“ sagði Trump á kosningafundi í Suður-Karólínu.
En meinti Pútín það sem hann sagði? TV2 spurði Flemming Splidsboel, sérfræðing í rússneskum málefnum hjá Dansk Institut for Internationale Studier, út í þetta. Hann sagðist telja að þarna hafi Pútín verið að blekkja, hann vilji þvert á móti fá Trump sem forseta.
„Þetta er einhverskonar öfug sálfræði þar sem Pútín reynir að telja okkur trú um að Rússar hafi að sjálfsögðu engan áhuga á að reyna að hafa áhrif á kosningarnar og reyna að tryggja að Trump nái kjöri. Því eigum við auðvitað ekki að trúa. Það er augljóst að Rússar munu skipta sér af kosningunum og þeir munu skipta sér meira af þeim en þeir hafa gert nokkru sinni áður,“ sagði Splidsboel.
Lotte Mejlehde, fréttamaður TV2 í Bandaríkjunum, sagði ummæli Pútíns vera nokkurskonar „dauðakoss“ til Biden. „Þetta er stuðningur og hrós sem þú vilt ekki fá,“ sagði hún.