Ísland getur orðið eitt af stóru nöfnunum í viskíheiminum. Umhverfið, náttúran og hitastigið hér á landi er alls ekki frábrugðið því sem er í Skotlandi og þá sér í lagi á eyjunni Islay, sem er eitthvert þekktasta viskíframleiðslusvæði í heiminum. Birgir Már Sigurðsson stofnandi og framkvæmdastjóri Þoran Distillery í Hafnarfirði, sem er eitt þriggja fyrirtækja hér á landi sem vinnur að framleiðslu viskís, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins á Eyjunni.
Þegar maður hugsar um viskí þá hugsar maður um Skotland. maður hugsar um Írland, maður hugsar jafnvel um Kentucky og sérvitringar eins og ég, þeir hugsa jafnvel um Tennessee, ekki Ísland.
„Við erum að reyna að breyta því,“ segir Birgir. „Það eru þrjú fyrirtæki sem eru að búa til íslenskt viskí, eitt þeirra er með vöru sem er komin á markað. Við vinnum mjög vel saman, öll þessi fyrirtæki, og við erum öll sammála um það að Ísland sé það einstakt að það geti orðið stórt nafn í viskí-heiminum.“
Hann bendir á að í Skotlandi eru mismunandi viskígerðarsvæði. Það séu Láglönd og Hálönd, Speyside, Campbelltown og Islay. Hvert svæði hafi sín séreinkenni þegar kemur að viskíframleiðslu.
Hann tilgreinir sérstaklega viskí frá eyjunni Islay, sem er þetta dæmigerða reykta viskí.
Já, það er alveg magnað hvað reykurinn getur verið allt frá því að vera mjög svona undirliggjandi yfir í það að vera allt umlykjandi.
„Eins og einhver hafi kveikt í hjólbarða, það er bara tjara og allur pakkinn,“ segir Birgir. „En þetta reykta viskí kemur frá lítilli eyju, sem heitir Isla, og sú eyja er alveg heimsþekkt bara fyrir sinn sérstíl. Þetta eru ekki nema held ég níu eimunarhús, miðað við síðustu talningu, en samt er þetta alveg einstakt og heimsþekkt.
Ég reyni að fara til Skotlands eins oft og ég get og er þarna með annan fótinn. Þegar ég var þarna, 2011 minnir mig, einmitt að heimsækja þessa eyju þá átta ég mig á því að þetta er ekkert ósvipað Íslandi, umhverfið og náttúran og hitastigið og þess háttar þannig að spurningin vaknaði, af hverju erum við ekki að búa til viskí á Íslandi?“
Í þættinum fara þeir vítt og breytt yfir viskíframleiðslu hér á landi og annars staðar, ræða um viðskiptaumhverfið sem hefur verið að breytast til batnaðar fyrir íslenska áfengisframleiðendur, m.a. með því að nú er heimilt að selja beint til neytenda á framleiðslustað og vonir standa til að vefsala á áfengi verði lögleidd innan tíðar. Viskíframleiðsla er flókin og mjög tímafrek þannig að mikilvægt er að hafa þolinmóða fjárfesta í liði með sér í greininni, auk þess sem miklu skiptir að skjóta fleiri stoðum undir reksturinn með framleiðslu einfaldari drykkja á borð við gin og líkjöra sem tekur mun minni tíma að framleiða en viskí.
Hlaðvarpið í heild verður aðgengilegt hér á Eyjunni í fyrramálið, laugardaginn 3. febrúar, kl. 8.