fbpx
Miðvikudagur 29.janúar 2025
EyjanFastir pennar

Steinunn Ólína skrifar: Góðavondafólkið

Eyjan
Laugardaginn 28. desember 2024 13:30

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mynd: Kári Sverrisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef við erum heiðarleg við okkur sjálf þá vitum við vel að við erum bæði vond og góð. Það er að við búum bæði yfir góðum eiginleikum og slæmum. Við getum verið bæði grimm og blíð.

Við erum fær um að taka góðar ákvarðanir og afleitar. Að stundum erum við sanngjörn og á stundum erum við ósanngjörn. Öll höfum við vísast verið óheiðarleg einhvern tímann. Það er mannlegt.

Hinir mannlegu brestir eru hluti af litrófi mannskepnunnar rétt eins og kostirnir. Samt erum við þess fullviss að sumt fólk megi dæma sem slæmt og annað sem gott. Þegar við gerum það erum við eiginlega að hafna því að allar manneskjur, og þar með við sjálf, séu marglaga og óútreiknanlegar, sem við auðvitað erum. Að undir ákveðnum kringumstæðum sé framkoma okkar kannski ekki alltaf til eftirbreytni. Að stundum sýnum við okkar allra bestu hliðar.

Ef við gætum nú bara verið ærleg með það hversu mistæk við erum þá hugsanlega gætum við verið sanngjarnari við hvert annað og ekki svo fljót til að dæma og útskúfa aðra fyrir hegðun sína og framkomu.

Sá sem gerir öðrum til miska gæti auðveldlega líka gert góðverk, og öfugt, ekki satt?

Kannski speglar framkoma okkar sálarlíf okkar að einhverju leyti. Þegar við erum vel fyrir kölluð og í góðu jafnvægu er líklegra að framkoma okkar og gjörðir einkennist af sanngirni og mildi. Þegar við erum illa fyrir kölluð og ekki í jafnvægi litast framkoma okkar af því. Svona er þessu held ég farið með allar manneskjur og ólíklegt að nokkur hafi svo fulla stjórn á tilfinningum sínum að ætíð viðhafi óbrigðula fyrirmyndarhegðun.

Kannski ættum við að minnast eigin vanstillingar þegar við mætum vanstilltu fólki. Kannski er vanstillt fólk speglarnir sem við verðum sem mest að líta í. Hvenær hef ég hagað mér svona og af hverju?

Vanstillingu er best að mæta með forvitni og hlýju en ekki síst af heiðarleika gagnvart sjálfum sér. Er eitthvað í þessari hegðun sem ég mæti nú hluti af mínu framkomumynstri núna eða áður? Get ég rifjað upp af hvaða sökum ég hagaði mér svona? Og ætti ég af þessum sökum að vera mildari í viðbrögðum mínum við vanstillingu sem ég hugsanlega mæti af og til í samskiptum við annað fólk?

Ef maður mætir vanstillingu af skilningi og þolinmæði þá situr sá vanstillti uppi með eigin vanstillingu og fær engan eldivið á bálið sitt. Það er líklegra til að draga úr áhrifum vanstillingarinnar, líklegra til að bæta samskipti við viðkomandi og að auki má draga af því einhvern lærdóm. Ef sá sem þráir drama fyrirhittir ekki andstæðing heldur félaga sem gengst við brestum sínum með því að bera kennsl á þá í framgöngu annarra, þá verður bara ekkert drama.

Nú eru áramót. Hvaða dramatísku átökum áttum við í á árinu sem er að líða? Hefðum við getað komist undan þeim ef aðeins við gætum séð að við höfum alltaf val um að standa hjá og meðtaka það sem er augljóst. Að við erum öll bæði vond og góð. Misheppnuð og vel gerð og framkoma annarra sýnir okkur aðeins fjölbreyttar hliðar sammannlegra eiginleika.

Hvaða dásamlegu stundir áttum við og hvað í okkar eigin fari stuðlaði að því? Rétt eins og við getum blásið í stríðslúðrana er okkur í lófa lagið að skapa gott andrúmsloft þar sem gleði, ánægja og hlýja ríkja.

Gleðilegt ár!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Steinunn Ólína skrifar: Ár íss og elda

Steinunn Ólína skrifar: Ár íss og elda
EyjanFastir pennar
22.12.2024

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks
EyjanFastir pennar
21.12.2024

Óttar Guðmundsson skrifar: Jólahugleiðing

Óttar Guðmundsson skrifar: Jólahugleiðing
EyjanFastir pennar
13.12.2024

Steinunn Ólína skrifar: Bríet Ísis Elfar

Steinunn Ólína skrifar: Bríet Ísis Elfar
EyjanFastir pennar
12.12.2024

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot