Valkyrjurnar þrjár, formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, ráða enn ráðum sínum hvað varðar myndun nýrrar ríkisstjórnar og hverjir munu setjast í ráðherrastóla.
Andrés Jónsson almannatengill og eigandi Góðra samskipta birtir lista yfir hvernig hans fólk telur líklega liðsskipan Valkyrjustjórnarinnar verða. Einnig er farið yfir líklega formenn þingflokka, formenn fastanefnda, aðstoðarmenn ráðherra, framkvæmdastjóra ríkisstjórnarflokkanna, framkvæmdastjóra þingflokka ríkisstjórnarflokkanna, og stjórnarformenn ýmissa stofnana og ríkisfyrirtækja.
„Áhugavert að velta því upp hver séu líkleg sem ráðherrar og hvernig ráðuneytin muni skiptast niður á flokka. Einnig hver verði formenn nefnda, hver verði aðstoðarmenn ráðherra og hver taki að sér forystuhlutverk í stjórnum stofnana og ríkisfyrirtækja fyrir hönd flokkanna þriggja,“ segir Andrés.
„Við settumst niður með nýju dótturfyrirtæki okkar, ráðningarstofunni Góðu fólki sem er sérhæft í að afla upplýsinga um hæft fólk og spurðumst fyrir um ráðherraefni, þingmenn og ráðgjafa innan Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og könnuðum hvað af þessu fólki njóti trausts á meðal formannanna þriggja.
Alls mátuðu Góð samskipti og Gott fólk yfir 50 manns við pólitískt skipuð hlutverk og störf í Valkyrjustjórninni.“
Svona lítur þeirra upplýsta ágiskun út:
Skipulag stjórnarráðsins (11 ráðuneyti, fækkun um 1)
Forsætisráðuneytið — S
Utanríkisráðuneytið — C
Félagsmálaráðuneytið — F
Fjármálaráðuneytið — C
Heilbrigðisráðuneytið — S
Innviðaráðuneytið — S
Atvinnuvegaráðuneytið — F
Dómsmálaráðuneytið — C
Barna og menntamálaráðuneytið — F
Nýsköpunar-, menningar-, iðnaðar og viðskiptaráðuneytið — C
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið — S
Forseti Alþingis — S
Andrés útlistar valið frekar og segir margar leiðir hafa verið mátaðar. „Samfylkingin er með rúm 21% en Viðreisn með tæp 16% og Flokkur fólksins með tæp 14%. Það ætti að þýða nokkuð jafna skiptingu en með því að Samfylkingin fái forsætisráðherrann og forseta Alþingis þá er flokkurinn að fá aðeins til viðbótar þó svo að ráðherratala Samfylkingar og Viðreisn verði jöfn. Flokkarnir fá báðir svo einn fleiri ráðherra en Flokkur fólksins. Sé forseti Alþingis flokkaður sem ráðherraígildi þá er skiptingin á milli flokkanna nokkur veginn í takti við fylgistölurnar eða 5,4,3. Við gerum ráð fyrir fækkun um einungis eitt ráðuneyti auk þess sem nokkrir málaflokkar færast á milli annarra ráðuneyta.“
Samkvæmt ofangreindri spá verður ráðherraskipan svona, sem Andrés færir ítarlegt rök fyrir í fréttabréfinu:
Ráðherrar og forseti Alþingis S5/C4/F3
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra
Logi Einarsson, innviðaráðherra
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
Ragnar Þór Ingólfsson, félagsmálaráðherra
Alma Möller, heilbrigðisráðherra
Hanna Katrín Friðriksson, nýsköpunar-, menningar-, iðnaðar og viðskiptaráðherra
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, atvinnuvegaráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis
Einnig er farið yfir líklega formenn þingflokka, formenn fastanefnda, aðstoðarmenn ráðherra, framkvæmdastjóra ríkisstjórnarflokkanna, framkvæmdastjóra þingflokka ríkisstjórnarflokkanna, og stjórnarformenn ýmissa stofnana og ríkisfyrirtækja.
Formenn þingflokka
Guðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingin
Sigmar Guðmundsson, Viðreisn
Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokkur fólksins
Fastanefndir Alþingis
Formaður fjárlaganefndar: Eyjólfur Ármannsson, Flokkur fólksins
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar: Jón Gnarr, Viðreisn
Formaður atvinnuveganefndar: Sigurjón Þórðarson, Flokkur fólksins
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar: Pawel Bartoszek, Viðreisn
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: Áslaug A Sigurbjörnsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
Formaður umhverfis- og samgöngunefndar: Ragna Sigurðardóttir, Samfylkingin
Formaður utanríkismálanefndar: Kristján Þórður Snæbjarnarson, Samfylkingin
Formaður velferðarnefndar: Víðir Reynisson, Samfylkingin
Formennskur í nefndum skýra sig að mestu sjálfar. Það er hefð að stjórnarandstaðan fái
Aðstoðarmenn ráðherra
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra
Ólafur Kjaran Árnason
Elín Hrefna Ólafsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Ingileif Friðriksdóttir
Auðbjörg Ólafsdóttir
Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra
Sigurjón Arnórsson
Helga Þórðardóttir
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
Guðmundur Gunnarsson
Gunnar Haraldsson
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Aldís Mjöll Geirsdóttir
Jóna Þórey Pétursdóttir
Ragnar Þór Ingólfsson, félagsmálaráðherra
Viðar Ingason
Birgir Jóhann Birgisson
Alma Möller, heilbrigðisráðherra
Kjartan Hreinn Njálsson
Gauti Skúlason
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra
Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Hanna Katrín Friðriksson, nýsköpunar-, menningar-, iðnaðar og viðskiptaráðherra
Kolfinna Tómasdóttir
Bjarni Halldór Janusson
Logi Einarsson, innviðaráðherra:
Freyja Steingrímsdóttir
Tómas Guðjónsson
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, atvinnuvegaráðherra
Jónas Yngvi Ásgrímsson
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir
Framkvæmdastjórar ríkisstjórnarflokkanna
Jónas Már Torfason, Samfylkingin
Svanborg Sigmarsdóttir, Viðreisn
Björn Þorláksson, Flokkur fólksins
Framkvæmdastjórar þingflokka ríkisstjórnarflokkanna
Sigrún Einarsdóttir, Samfylkingin
Stefanía (Stella) Sigurðardóttir, Viðreisn
Hreiðar Ingi Eðvarðsson, Flokkur fólksins
Stjórnarformenn ýmissa stofnana og ríkisfyrirtækja
Bankaráðsformaður Seðlabankans: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Stjórnarformaður Landsvirkjunnar: Aðalsteinn Leifsson
Stjórnarformaður Isavia: Friðjón Einarsson
Stjórnarformaður HMS: Sonja Ýr Þorbergsdóttir
Stjórnarformaður Íslandspósts: Thomas Möller
Stjórnarformaður RÚV: Nanný Arna Guðmundsdóttir
Stjórnaformaður Landsnets: Friðrik Sigurðsson
Formaður Landskjörsstjórnar: Magnús Norðdahl
Stjórnarformaður Tryggingastofnunar: Björn Kristján Arnarson
Stjórnarformaður Vinnumálastofnunar: Lilja Rafney Magnúsdóttir
Stjórnarformaður Landspítalans: Anna Sigrún Baldursdóttir
Stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands: Bergur Ebbi Benediktsson
Stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Stjórnarformaður Mannréttindastofnunar: Sæunn Gísladóttir
Stjórnarformaður Byggðastofnunar: Kristján Möller
Stjórnarformaður Rarik: Margrét Kristmannsdóttir
Ítarlega greiningu má lesa hér.