fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Eyjan

Lofar nýjum og betri Brynjari 2025 – „Ekki þjóðsaga að nefið stækki með hverri lygi“

Eyjan
Miðvikudaginn 18. desember 2024 17:30

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, stefnir á að mæta til leiks sem nýr og betri maður árið 2025. 

Brynjar skipaði 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður í nýafstöðnum þingkosningum, en náði ekki kjöri. Segir hann eftir mikla yfirlegu að kominn sé tími til breytinga hjá honum sjálfum.

„Ég hef haft dágóðan tíma í haust til að hugsa um lífið og tilveruna og framtíðina ekki síst. Niðurstaðan er sú, eftir mikla yfirlegu, að tími sé kominn til breytinga. Ætla byrja á að hætta að segja ósatt öllum stundum. Það er nefnilega ekki þjóðsaga að nefið stækki með hverri lygi. Tel líkur á að það takist eftir brotthvarf úr stjórnmálum.“

Í færslu á Facebook-síðu má skilja Brynjar sem svo að hann hyggist fletta af sér hamnum sem hefur heltekið hann í áratug.  

„Stefni á að losa mig undan neikvæðni, þusi og almennum leiðindum, sem hefur heltekið mig síðasta áratuginn. Mér hefur verið bent á að lesa Biblíuna til að skynja samkennd, mannúð og mikilvægi kærleikans og fyrirgefningarinnar. Það dugi skammt að leita til rándýrra sérfræðinga í þeim efnum. Það er trú margra að undir yfirborðinu sé hægt að finna ljúfling en það þurfi kannski að kafa djúpt með súrefniskút til að finna hann.“

Eineltið minnkar eftir brotthvarf Pírata

Píratar féllu af þingi en Brynjar hefur lengi verið gagnrýninn á flokkinn, svo virðist sem hann ætli í kjölfarið að láta af eineltistilburðum sínum og breyta um útlit, sem þó verður kostnaðarsamt að hans sögn. En eiginkonan sem Brynjar kallar jafan Soffíu ætti að kætast.

„Ég hyggst láta af öllu einelti á samfélagsmiðlunum. Jafnvel láta þá miðla alveg eiga sig. Kannski gerist það sjálfkrafa eftir að Píratar duttu af þingi. Eineltistilburðir mínir hafa nefnilega mest farið í taugarnar á Soffíu fyrir utan klæðaburð minn og útlit. Það yrði mjög kostnaðarsamt fyrir mig að bæta klæðaburð og útlit og sennilega þyfti landssöfnun undir stjórn Semu Erlu til að ná fjármunum sem til þarf og hugsanlega aðkomu læknavísindanna.

Mikilvægast fyrir mig er sennilega átak í að bæta líkamlega heilsu mína. Ég hef illa tollað á líkamsræktarstöðvum. Er of viðkvæmur fyrir óvæntum hljóðum þar. Upplifi mig alltaf sem eitthvert aðskotadýr sem allir glápa á og glotta. Mér skilst að ástæðan sé sú að óþekkt sé að menn mæti þar í hálfrar aldar gömlum íþróttafötum.

Ef þetta gengur eftir kemur nýr og betri maður til leiks á nýju ári. Það ískrar í Soffíu af tilhlökkun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristrún Frostadóttir: Dagur getur blómstrað í þingflokki Samfylkingarinnar

Kristrún Frostadóttir: Dagur getur blómstrað í þingflokki Samfylkingarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Verður offitan Trump ofurefli?

Svarthöfði skrifar: Verður offitan Trump ofurefli?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokksins

Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokksins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorgerður Katrín: Einfeldni í varnarmálum ekki í boði – þurfum að rækta sambandið við Bandaríkin

Þorgerður Katrín: Einfeldni í varnarmálum ekki í boði – þurfum að rækta sambandið við Bandaríkin
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lántaka ríkisins: Hærri vextir á ríkisvíxlum nú en í desember

Lántaka ríkisins: Hærri vextir á ríkisvíxlum nú en í desember
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Katrín tekur við stjórnarformennsku af efnahags- og fjármálaráðherra

Katrín tekur við stjórnarformennsku af efnahags- og fjármálaráðherra