Íslenska tæknifyrirtækið KAPP ehf. hefur keypt meirihlutann í bandaríska félaginu Kami Tech Inc. í Seattle. KAPP sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á búnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingavinnslu og annan iðnað. Í tilkynningu frá KAPP segir að með kaupunum sé fyrirtækið að taka stórt skref í því að færa íslenskt hugvit og tækniþekkingu á fiskiðnaði á markað í Bandaríkjunum.
Kami Tech framleiðir vélar og búnað úr ryðfríu stáli og áli fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og matvælafyrirtæki á svæðinu og þjónustar fyrirtæki á borð við American Seafoods, Trident Seafoods og Golden Alaska Seafoods sem eru allt sameiginlegir viðskiptavinir með KAPP.
Í tilkynningunni segir að um sé að ræða stefnumarkandi kaup til frekari vaxtar KAPP á erlendum mörkuðum. Kami Tech er staðsett á Pier 90 í Seattle þar sem stór fiskiskip fjölda útgerða leggjast að bryggju til að sækja sér viðhaldsþjónustu, kaupin eru liður í aukinni sókn KAPP á vesturströnd Bandaríkjanna.
Lausnir KAPP fyrir sjávarútvegsfyrirtæki inn á þennan markað eru krapavélar og kælivélar um borð í fiskiskip og í fiskvinnslur sem og RAF sprautusöltunarvélar, kælitankar, frystar og uppþýðingarbúnaður.
Í tilkynningunni frá KAPP segir að sjávarútvegur í Bandaríkjunum sé ekki jafn framsækinn og á Íslandi, segja megi að hann sé um 15-20 árum á eftir því sem gerist á Íslandi í dag þegar kemur að gæðamálum með hráefni og kælingu á því.
„KAPP er því með þessu stefnumarkandi skrefi að bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum í Ameríku uppá nýjustu tækni í kælingu á hráefni, nálgun sem notast er við á þróuðustu mörkuðum í Evrópu.“
KAPP hefur undanfarin ár selt OptimICE® krapavélar sem framleiddar eru Íslandi til félaga í sjávarútvegi á vesturströnd Bandaríkjanna, Kanada og í Alaska.
KAPP segir kaupin á Kami Tech vera svar við aukinni eftirspurn markaðsins í Bandaríkjunum eftir stöðluðum kæli- og frystilausnum. KAPP sé fjárhagslega sterkt og tilbúið í þessa vegferð en nýlega keypti KAPP einnig allar eignir þrotabúsins Skagans 3X, sem eykur vöruframboð samstæðunnar inn á markaðinn í N-Ameríku.
„Með því að sameina krafta KAPP ehf. með Kami Tech erum við að auka getu okkar til að þjóna breiðari hópi viðskiptavina í Norður-Ameríku með nýstárlegum, end-to-end lausnum. Bæði fyrirtækin hafa með góðum árangri, byggt upp sterk viðskiptatengsl og afhent háþróaða tækni. Saman erum við að bjóða víðtækari lausnir fyrir markaðinn, byggt á sameiginlegum gildum okkar um að bjóða framúrskarandi þjónustu og vera ávallt í fararbroddi fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP.
„Samruninn við KAPP er spennandi tækifæri til að bjóða viðskiptavinum í Norður-Ameríku upp á aukið úrval lausna sem sannarlega skera sig úr. Sameinuð sérfræðiþekking okkar og skuldbinding viðskiptavina mun knýja áfram vöxt og gera okkur kleift að takast á við fjölbreyttari þarfir. Fólk er kjarninn í fyrirtæki okkar, og með samræmdri menningu okkar, erum við vel í stakk búin til að móta farsæla framtíð saman,“ segir Tom Key, framkvæmdastjóri hjá Kami Tech Inc.