Birta Ósk Theodórsdóttir hefur verið ráðin tæknistjóri Akademias þar sem hún mun koma til með að stýra áframhaldandi þróun á Avia hugbúnaðarlausninni og Jenna Kristín Jensdóttir hefur verið ráðin sem fræðslustjóri hjá Akademias og ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt því að tryggja að öll þjónusta Akademias (t.a.m. framleiðsla á námsefni) sé í takt við væntingar og stefnu fyrirtækisins.
„Við erum ákaflega stolt af því að fá þær Jennu og Birtu til liðs við okkur en hjá Akademias starfa 22 sérfræðingar í fræðslumálum. Akademias hjálpar vinnustöðum að greina fræðsluþarfir og skipuleggja fræðsluþarfir, AVIA fræðslu- og samskiptakerfið, framleiðslu á sértækum námskeiðum og á stærsta rafræna fræðslusafn á Íslandi með yfir 180 námskeiðum,“ segir Guðmundur Arnar framkvæmdastjóri Akademias
Birta útskrifaðist með Bsc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022 og hefur sinnt kennslu í fjölmörgum námskeiðum tölvunarfræðideildar háskólans frá árinu 2020. Hún hóf störf sem forritari hjá Avia í upphafi árs 2022 þar sem hún var lykilaðili í þróun og uppbyggingu hugbúnaðar lausnarinnar. Áður en hún tók við nýju hlutverki hjá Akademias starfaði Birta sem bakendaforritari hjá Dohop.
Jenna Kristín Jensdóttir er gift þriggja barna móðir sem hefur brennandi áhuga á mannauðsmálum og öllu sem kemur að mannlegum samskiptum og hefur unnið við mannauðsmál í rúm sex ár. Jenna lauk BS í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst, Master í forystu og stjórnun og Master í markaðsfræði frá sama skóla. Hún starfað sem deildarstjóri mannauðs hjá Öryggismiðstöðinni og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af stjórnun mannauðsmála.