Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, sendir fyrrum kollega sínum Birni Bjarnasyni síðbúna afmæliskveðju, en Björn fagnaði áttræðisafmæli sínu í gær. Össur nýtti þó færið og hnippti vinalega í fyrrum pólitískan andstæðing sem líkt og Össur fylgist enn vel með íslenskri stjórnmálaumræðu.
„Morgunkveðja til Engeyings
Björn Bjarnason, vitrasti maður Engeyjarættarinnar, varð áttræður í gær. Við háðum marga hildi á Alþingi. Hann var ófyrirleitinn, orðhvass, rökfastur, og í persónulegri viðkynningu miklu skemmtilegri en flestir þekkja. Gáfaðir menn eru oft djúpir húmoristar í tveggja manna tali. Það á Björn sameiginlegt með „his eternal foe“, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Best var samstarf okkar í Þingvallanefnd um 12 ára skeið, þar sem við stóðum saman að margvíslegri uppbyggingu, og gegn áformum Framsóknar um heimskulegar byggingar innan þjóðgarðs. Í miðjum slagnum um fjölmiðlalögin 2004 orguðum við hvor á annan í þinginu um daga en unnum saman um kvöld við að undirbúa að koma Þingvöllum á heimsminjaskrá UNESCO. Það tókst á mettíma og ekki síst að þakka elju hans.
Birni verð ég ævarandi þakklátur fyrir góðan skilning á málefnum stórurriðans, sem á okkar dögum var að deyja út í Þingvallavatni. Drengileg liðveisla hans í verndaraðgerðum fyrir urriðann skiptu miklu máli um afdrif hans á úrslitastundu í sögu stofnsins. Slíkir hlutir skipta máli, a.m.k. fyrir ræfil minn.
Það gleður mig líka hversu náið Björn fylgist með afskiptum mínum – sem engin eru raunar í dag – og útleggingum á pólitík. Stundum hefur það orðið honum að yrkisefni, og í tilefni af áttræðisafmælinu endurbirti ég hér nýlegan pistil af síðunni bjorn.is þar sem fjallað er um ræfil minn. Ég veit það gleður afmælisbarnið, og þarmeð mig.
Birni og hans góðu konu, Rut Ingólfsdóttur óska ég til hamingju með gærdaginn og megi þau lengi lifa góða daga!“
Össur deilir með færslu sem Björn ritaði á bloggi sínu bjorn.is og kallaði þar Össur „hollvin Ólafs Ragnars Grímssonar“ og sakaði fyrrum kollega sinn um að hafa veitt Svandísi Svavarsdóttir, formanni Vinstri Grænna, óheillaráð.