Donald Trump hefur verið mjög jákvæður í garð rafmynta í kosningabaráttu sinni og þar sem niðurstöður talninga fram að þessu hafa verið honum hagstæð, þá hefur það haft jákvæð áhrif á gegni rafmyntanna.
Gengi Bitcoin og Ethereum hefur hækkað um 8% í nótt og gengi Solana um rúmlega 15%.
Gengi Dogecoin hefur hækkað mest, eða um 20%. Elon Musk, sem er ákafur stuðningsmaður Trump, hefur lofsamað myntina og því var reiknað með að gengi hennar myndi hækka ef Trump sigrar.