Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og sérfræðingur í áhættustjórnun, öryggismálum og persónuvernd, gefur lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar í dag og segir þau brandara dagsins.
„Planið okkar hefur gengið upp og ég er sannfærður um að við getum lokið verkefninu ef við höldum áfram á sömu braut og gerum enn betur. Fyrst ríður á að Alþingi klári fjárlög sem styðja við að ljúka verkefninu og ná verðbólgumarkmiði“
skrifar Bjarni í færslu á Facebook fyrr í dag.
Í færslunni fagnar Bjarni því að verðbólga hafi lækkað milli mánaða, mælist nú 5,1% og hafi því lækkað um 2,8% á einu ári. Telur Bjarni ljóst að aðhald í ríkisfjármálum, mikilvægir kjarasamningar og aðhald Seðlabanka hafi skilaði þessum árangri og ef rétt er farið með muni þessi árangur halda áfram að birtast næstu mánuði með frekari hjöðnun verðbólgu.
Marinó spyr hvert planið var sem Bjarni vísar til.
„Að missa stjórn á verðbólgunni, svo hún færi upp fyrir 10% og væri yfir 6,0% í 30 af 31 mánuði frá febrúar 2022 til ágústs 2024? Að glopra stöðugleika úr höndunum eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum haustið 2021? Að vextir Seðlabankans myndu hækka úr 1,5% við upphaf stjórnarsamstarfs í 9,25% á 21 mánuði og eru enn 9,00%? Að vaxtabyrði almennings og fyrirtækja færi í hæstu hæðir? Að vextir umfram verðbólgu hafi ekki verið hærri mjög lengi, líklega frá árinu 2004?
Var þetta planið í kosningum fyrir þremur árum?“
Marinó rifjar upp í færslu sinni á Facebook að fyrir þremur árum, haustið 2021 í kosningabaráttunni, hafi forystufólk ríkisstjórnarflokkanna barið sér á brjósti, að það hefði komið á lágum vöxtum.
„Var það planið, að þeir hækkuðu um 500% og gott betur á kjörtímabilinu?
Nei, það var ekki planið og raunar má efast um að það hafi verið eitthvað plan. Ég held að flestir landsmenn hafi upplifað, að engin stjórn hafi verið á efnahagsmálum þjóðarinnar frá síðustu kosningum. Hafi yfir 9,0% verðbólga í 11 mánuði og 9,25% meginvextir Seðlabankans í um 13 mánuði verið planið, þá hefði verið gott að vita það haustið 2021, áður en gengið var til kosninga. Þá hefðu kjósendur kosið með einhverju öðru plani.“