Í heiðurssætinu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingar og utanríkisráðherra.
Kristrún: Við ætlum að hrista upp í kerfinu
„Samfylkingin býður trausta forystu og nýtt upphaf fyrir Ísland. Við viljum keyra á samstöðu frekar en á klofningsmálum. Og við viljum ná þjóðinni saman um þau mál sem mestu skipta í daglegu lífi fólks og þar sem er breið sátt meðal almennings.
Við erum með plan. Við höfum kynnt útspil um örugg skref í heilbrigðismálum og árangur í atvinnu- og samgöngumálum, sem við höfum unnið þétt með þjóðinni, og eftir helgi kynnum við nýtt útspil í húsnæðis- og kjaramálum eftir mikla vinnu. Ísland þarf ný kerfi. Betri kerfi sem virka fyrir venjulegt fólk. Og við ætlum ekki bara að láta hlutina malla áfram eins og gamla pólitíkin hefur gert á síðustu árum. Við ætlum að hrista upp í kerfinu – fáum við til þess traust í kosningunum. Nú er bara að keyra þessa kosningabaráttu í gang og ná þjóðinni saman um breytingar.“
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður:
1. Kristrún Frostadóttir, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar
2. Dagur Bergþóruson Eggertsson, læknir og fyrrv. borgarstjóri
3. Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður
4. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður
5. Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður
6. Anna María Jónsdóttir, kennari
7. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur
8. Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, forseti ungs jafnaðarfólks
9. Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull
10. Jelena Bjeletic, leikskólakennari og sjúkraliði
11. Magnea Marinósdóttir, stjórnmálafræðingur
12. Steindór Örn Gunnarsson, húsasmíðanemi
13. Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður VR
14. Alexandra Ýr van Erven, verkefnisstjóri í HR
15. Axel Jón Ellenarson, samskiptastjóri Sameykis
16. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ
17. Einar Kárason, rithöfundur
18. Jóhanna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
19. Hákon Óli Guðmundsson, verkfræðingur
20. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
21. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og fyrrv. alþingismaður
22. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. form. Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra