fbpx
Þriðjudagur 24.desember 2024
Eyjan

Elliði segir þessa frambjóðendur þá skemmtilegustu – „Kunna þá list að vera mannleg, létt og skemmtileg án þess að verða kjánaleg“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 24. október 2024 09:30

Mynd: ellidi.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir það sérstaka list að vera skemmtilegur stjórnmálamaður án þess að detta út í kjánaskap, list sem getur gert kraftaverk í kosningabaráttu.  Segir hann þetta hljóma einfalt en dæmin sanna að svo er ekki.

„Sá hæfileiki að vera fyndinn, mannlegur og áhugaverður, án þess að fórna trúverðugleikanum er í raun sjaldgæfur. Húmor og lífsgleði sem er rétt notuð, getur skapað sterkari tengsl við fólk og aukið vinsældir frambjóðenda,“

segir Elliði í pistli sínum. 

Segist hann þekkja fjöldann allan af þingmönnum sem eru virkilega skemmtilegt og gott fólk en ná ef til vill ekki að sýna það jafn vel og sex ólíkir frambjóðendur sem Elliði vill vekja athygli á, hrósa og gera að umtalsefni. Hvetur hann fólk til að fylgjast með framgöngu þeirra.

„Þetta eru þau:  Jens Garðar Helgason, Brynjar Níelsson, Ingibjörg Ísaksen, Snorri Másson, Inga Sæland og Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Ólíkt fólk með ólíkan styrk en eiga það sameiginlegt að kunna þá list að vera mannleg, létt og skemmtileg án þess að verða kjánaleg.“

Elliði fer síðan yfir hvert þeirra fyrir sig og hvað það er sem gerir hvert fyrir sig að skemmtilegum frambjóðenda að mati Elliða. Nú er bara spurning hvort lesendur eru sammála Elliða.

Jens Garðar Helgason

Stjórnmálamaður sem er fyndinn og afbragðsgóður sögumaður

Jens Garðar Helgason er efsti maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem framundan eru. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði og starfar sem aðstoðarframkvæmdastjóri fiskeldisfélagsins Kaldvíkur.

„Jens Garðar Helgason er líklega einn besti sögumaður og gleðipinni sem stjórnmálunum hefur áskotnast. Hann nýtir frásagnarhæfileika sína til að fanga athygli fólks og koma boðskap sínum á framfæri á afslappaðan og skemmtilegan hátt. Að segja góða sögu á réttum tíma getur hjálpað til við að slaka á andrúmsloftinu og skapa dýpri tengingu. Hann gefur ekki afslátt af þunga málefna en rammar þau oft inn í húmorískar umbúðir. Í senn kann hann þá list að nýta ekki tímann sem annað fólk talar til að hugsa hvað hann ætlar næst að segja, heldur í raun og veru að hlusta. Þessi hæfileiki gerir það að verkum að kjósendur tengja við hann sem einstakling, ekki bara sem embættismann á Alþingi.“

Brynjar Þór Níelsson

Beittur húmor sem vopn

Brynjar Þór Níelsson lögmaður hefur góða reynslu af þingi sem fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Brynjar sat fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður 2013–2016, og suður 2016–2021. Einnig var hann varaþingmaður fyrir norðurkjördæmið febrúar–mars 2023 og mars–apríl 2023. Brynjar hefur ekki þegar þetta er skrifað sagt hvort hann hyggist bjóða sig fram aftur núna, en RÚV fullyrti í byrjun vikunnar að Brynjar fengi þriðja sætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður.

„Brynjar Níelsson er þekktur fyrir að vera bæði kaldhæðinn og hnyttinn. Hann notar húmor til að skjóta á andstæðinga og jafnvel samherja, setur málefni í skiljanlegan búning, svarar gagnrýnendum á mannamáli og brýtur flókin efni niður í form sem fólk skilur. Hann er óhræddur við að hafa skoðun og vera trúr henni, jafnvel þegar það er tímabundið ekki vinsælt. Hann er líka algerlega óttalaus þegar kemur að því að gera grín og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt góða fólkið móðgist fyrir annarra hönd. Það gerir hann að áhugaverðum viðmælanda sem fólk vill hlusta á, jafnvel þótt það sé ekki alltaf sammála honum.“

Ingibjörg Isaksen
Inga Sæland

Jákvæðni sem lykill að árangri

Ingibjörg Isaksen hefur setið á þingi þingmaður Framsóknar fyrir norðausturkjördæmis síðan 2021. Inga Sæland er formaður Flokks fólksins og hefur setið á þingi sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2017.

„Ég gæti haldið lengi áfram að telja upp skemmtilega Sjálfstæðismenn og fæ í raun samviskubit yfir því að fjalla ekki sérstaklega um Diljá Mist, Gulla Þór og fleiri. Ég ætla þó heldur að skyggnast yfir flokkslínuna og nefna Ingibjörgu Ísaksen, sem alltaf virðist í góðu skapi. Það er erfitt að horfa fram hjá jákvæðninni hennar, sem hefur þann eiginleika að lýsa upp hvert rými sem hún kemur inn í. Hún hefur fundið leið til að nýta glaðværð sína á áhrifaríkan hátt í pólitík, þar sem hún skapar góða stemningu og vekur jákvæðar tilfinningar hjá fólki. Í heimi stjórnmálanna, þar sem andstæðingar skiptast oft á hörðum orðum, getur brosið verið eitt sterkasta vopnið. Þennan þráð finnst mér ég oft einnig finna einnig hjá Ingu Sæland. Hún er að öðru leyti ekkert lík Ingibjörgu. Hún býr yfir einhverjum léttleika sem er  hlýr og mannlegur, undir hárbeittum ákúrum – dálítið eins og Soffía frænka í Kardimommubænum. Svona… hlýtt fussumsvei. Krúttleg reiði. Húmorískar eðalskammir.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd: KSJ/DV
Snorri Másson

Sérlundaður en viðkunnanlegur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er þaulvanur í stjórnmálum. Hann sat á þingi fyrir Framsóknarflokk í Reykjavíkurkjördæmi norður 2009–2013, sem þingmaður Norðausturkjördæmis 2013–2017 og hefur setið frá 2017 sem þingmaður Miðflokksins. Sigmundur Davíð var forsætisráðherra 2013–2016, og dómsmálaráðherra 2014.

Fjölmiðlamaðurinn Snorri Másson sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum. 

„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur náð að gera sérlund sína að styrk. Hann er óhræddur við að sýna húmor sinn á persónulegan og einlægan hátt, sem gerir hann bæði skemmtilegan og viðkunnanlegan. Hann tekur sjálfan sig ekki alltaf of hátíðlega og nýtir þá eiginleika til að láta fólk brosa, jafnvel í alvarlegum umræðum. Langar leiðir má sjá að hann elskar leikinn. Það var reyndar forkastanlega bjánalegt þegar hann settist út í móa að borða hrátt hakk fyrir athyglina. Einmitt dæmi um það þegar tilraun til athygli gerir frambjóðendur kjánalega. Það skrái ég á kosningastjóra hans frekar en á Sigmund Davíð. Ég get ekki látið hjá líða án þess að nefna úr sömu átt nýframbjóðandann Snorra Másson. Yfir honum er húmorískt blik og bros sem kætir. Í samræmi við ungan aldur er dálítil svona „búningsklefastemning“ yfir honum sem mér þykir virka vel. Hann er prúðmannlegur og vel máli farinn en hikar ekki við grín og glens þannig að stundum finnst mér eins og ég þekki hann betur en ég í raun geri.“

Að taka mið af réttum stað og stund

Elliði segir nauðsynlegt fyrir stjórnmálamenn nútímans að mæta kjósendum á nýjum miðlum eins og TikTok, Instagram, LinkedIn og fleiri. 

„Þar geta þeir náð til yngri kjósenda sem ekki fylgjast endilega með hefðbundnum pólitískum umræðum. En þetta er hægara sagt en gert, því það er auðvelt er að misreikna sig og verða kjánalegur í stað þess að vera skemmtilegur. Það er gott dæmi um hvernig það sem virðist góð hugmynd til að ná athygli getur snúist í höndum þeirra sem ekki hafa vald á húmornum. Fátt er jafn hallærislegt eins og þegar stjórnmálafólk lendir í „Hey fellow kids“. Þykist vera eitthvað sem það er ekki. Ég þori að veðja stórum bjór á að þó nokkrir frambjóðendur eru að fara að lenda í þeirri gryfju á Tiktok og víðar.“

Elliði segir einstaklinganna sex sem hann fjallar um hafa sýnt að það er hægt að vera skemmtilegur og sannfærandi án þess að fórna persónuleika eða trúverðugleika

„Húmor í stjórnmálum er listgrein sem þarf að þjálfa ef það er fólki ekki eðlislægt. Það þurfa ekki allir að vera brandarakallar en léttleiki og manneskjulegt viðmót hjálpar. Jens, Brynjar, Ingibjörg, Inga, Snorri og Sigmundur hafa sýnt að það er hægt að vera skemmtilegur og sannfærandi án þess að fórna persónuleikanum eða trúverðugleikanum. Þau kunna að vera hlý og skemmtileg á þann hátt að fólk hlær með þeim, ekki að þeim. Það er sú hæfni sem gerir þau að bæði vinsælum og áhrifamiklum stjórnmálamönnum, og sú list sem aðrir frambjóðendur í komandi kosningum ættu að reyna að tileinka sér án þess af gefa afslátt af sínum eigin persónuleika.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir 10 Prís verslanir opna á næsta ári

Segir 10 Prís verslanir opna á næsta ári
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Afhjúpar lævíst plott Sjálfstæðisflokksins til að tryggja sér fjárhagslega yfirburði – Svona reyndi hann að veikja samkeppnina

Afhjúpar lævíst plott Sjálfstæðisflokksins til að tryggja sér fjárhagslega yfirburði – Svona reyndi hann að veikja samkeppnina
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla endurnýjar listaverkin á Bessastöðum

Halla endurnýjar listaverkin á Bessastöðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu: Góð verslun fyrir jólin – sprenging í netverslun í nóvember

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu: Góð verslun fyrir jólin – sprenging í netverslun í nóvember
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Leví skrifar – Verri niðurstaða

Björn Leví skrifar – Verri niðurstaða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur um vöruhúshneykslið – „Ekki skipulagsslys heldur skemmdar­verk”

Sigmundur um vöruhúshneykslið – „Ekki skipulagsslys heldur skemmdar­verk”