fbpx
Miðvikudagur 16.október 2024
Eyjan

Jens Garðar býður sig fram í oddvitasætið

Eyjan
Miðvikudaginn 16. október 2024 11:16

Jens Garðar Helgason. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jens Garðari.

Jens Garðar hefur langa reynslu af störfum í atvinnulífi og sveitarstjórn. Hann segir framboðið byggt á þörf fyrir sterka forystu sem gæti betur hagsmuna Norðausturkjördæmis.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum samfélagsins og trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt áframhaldandi framfarir og velferð í kjördæmi sem og landinu í heild. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið sterkt hreyfiafl íslenskra stjórnmála og þjóðlífs. Ég vill leggja mitt af mörkum í baráttu fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar,“ segir Jens Garðar í tilkynningu sinni.

Ennfremur segir:

„Jens Garðar er 47 ára gamall, fæddur og uppalinn á Eskifirði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1996, stundaði nám við viðskiptafræði í Háskóla Íslands frá 1997 til 2000 og hefur MBA gráðu frá Norwegian School of Economics. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði og á þrjú börn. Eiginkona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir heilaskurðlæknir.

Jens Garðar hefur lengi starfað í forystu sjávarútvegsins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sveitarstjórnarstigi. Hann var formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á árunum 2014 – 2020, varaformaður Samtaka atvinnulífsins 2017- 2020 og formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð tvo kjörtímabil. „Í störfum mínum í atvinnulífi og stjórnmálum hef ég unnið náið með fólki og veit hversu mikilvægt það er að hlusta á raddir allra og byggja brýr milli ólíkra sjónarmiða,“ segir hann.

„Hugmyndaauðgi, kjarkur og þor einstaklingsins er, og hefur verið, drifkraftur hagsældar Íslendinga. Það er hlutverk ríkisvaldsins að skapa umhverfi sem hvetur, en ekki letur, áframhaldandi fjárfestingar og framþróun,“ segir Jens Garðar.

„Í þessu starfi vil ég leiða Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi. Rödd athafnafrelsis þarf að heyrast betur. Forsenda uppbyggingar öflugs velferðarkerfis er meiri verðmætasköpun. Frjálst fólk framleiðir meira.““

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum samskiptastjóri Pírata segir kjósendum að beina atkvæðum sínum annað – „Ekki sóa atkvæðunum ykkar“

Fyrrum samskiptastjóri Pírata segir kjósendum að beina atkvæðum sínum annað – „Ekki sóa atkvæðunum ykkar“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Inga Sigrún Atladóttir skrifar: Hvatning borgarstjóra til sveitarstjórnarmanna: Velferð barna og starfsfólks skóla í fyrirrúmi

Inga Sigrún Atladóttir skrifar: Hvatning borgarstjóra til sveitarstjórnarmanna: Velferð barna og starfsfólks skóla í fyrirrúmi
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðbrögð við stjórnarslitum – „Bjarni Ben í þjónustuhlutverki. Er hann að reyna fyrir sér í uppistandi?“

Viðbrögð við stjórnarslitum – „Bjarni Ben í þjónustuhlutverki. Er hann að reyna fyrir sér í uppistandi?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar – Að hætta tilgangslausu streði

Björn Jón skrifar – Að hætta tilgangslausu streði
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þórhildur Sunna: Aðdáunarvert innra starf hjá Sjálfstæðisflokknum

Þórhildur Sunna: Aðdáunarvert innra starf hjá Sjálfstæðisflokknum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Vandi villta vinstrisins

Sigmundur Ernir skrifar: Vandi villta vinstrisins