fbpx
Sunnudagur 13.október 2024
Eyjan

Össur segir Svandísi hafa leikið af sér – „Ekki græt ég mig í svefn útaf því…“

Eyjan
Sunnudaginn 13. október 2024 19:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, telur að Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hafi leikið af sér í aðdraganda ákvörðunar Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, um að óska eftir stjórnarslitum. Þetta kemur fram í færslu stjórnmálamannsins margreynda á Facebook þar sem hann fer yfir sviðið.

„Svandís Svavarsdóttir leiðir flokk sem er í tilvistarhættu, og allsendis óvíst er að nái inn á þing í kosningunum sem senn verður boðað til. Að flokki hennar er sótt úr þremur áttum, frá Samfylkingu sem hefur reytt talsverðan hluta af fylgi VG til sín, Sósíalistum sem munu efalítið ná manni á þing eftir að VG gafst upp á flestum prinsipum sínum, og Flokki fólksins,“ skrifar Össur.
Segir hann Svandísi hafa búið til mjög einfalt plott sem fólst í að slíta ríkisstjórninni á hentugum tíma fyrir VG og keyra svo í kosningar undir því flaggi að VG hefði steypt undan Sjálfstæðisflokknum. Þannig ætlaði hún, að mati Össurar, að krafsa til sín atkvæði af vinstri vængnum í nægum mæli til að bjarga „ræflinum sem eftir er af VG.“

Afleikur að storka Bjarna

„Þetta var í sjálf sér ágætis plan og hefði kanski getað bjargað VG fyrir horn. Það var hins vegar alger afleikur hjá henni að storka Bjarna með því nánast að núa þessu plani upp í nasir hans og lýsa því yfir ásamt Mumma varaformanni að VG ætlaði auk þess að leggjast þvert gegn þeim málum tveimur sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur ofuráherslu á, innflytjendamálin og orkumál. Við þessar aðstæður átti Bjarni í reynd engan kost annan en slíta ríkisstjórninni strax,“ skrifar Össur og bendir á að hann hafi viðrað þessa skoðun sína í Grjótkastinu, hlaðvarpi Björns Inga Hrafnssonar fjölmiðlamanns, síðastliðinn föstudag.
„Yfirlýsingar Svandísar knúðu í reynd Bjarna til að hrista loksins af sér slyðruorðið, taka frumkvæðið – og slíta stjórninni á undan henni. Þetta var grófur afleikur hjá Svandísi. Hún virðist hafa verið slegin algerri skákblindu, því í stöðunni átti Bjarni engan annan kost en rjúfa stjórnarsamstarfið. Svandís hrinti honum út í þá ákvörðun. Hann hefur þá fullkomnu afsökun að yfirlýsingar nýs formanns VG gerðu hana einfaldlega óstjórntæka – og þarmeð hennar flokk,“ skrifar Össur.
Segir hann Svandísi hafa í reynd leyst Bjarna niður í fleiri en einni snöru með þessum afleik sínum.
Svandís Svavarsdóttir lék illa af sér að mati Össurar

Svandís varð björgunarbelti Bjarna

„Hún gaf honum gilda ástæðu til að slíta ríkisstjórninni án þess að nokkur geti ásakað hann um skort á úthaldi, eða tækifærisstefnu. Dagar hans sem formanns voru nánast taldir, og allir – líka hann sjálfur – bjuggu sig undir formannsskipti.Þessi snöggu umskipti gera hins vegar að verkum að hann getur haldið áfram sem formaður – einsog hann langar til – og mun leiða flokkinn gegnum kosningar. Vitaskuld fær Sjálfstæðisflokkurinn meira en þau 12-13 prósent sem kannanir síðustu mánuða hafa sýnt hann hafa. Það mun Bjarni túlka sem varnarsigur – og sitja sem fastast,“ skrifar Össur.
Þannig hafi Svandís  því afrekað það að verða björgunarbelti Bjarna Benediktssonar.
„Henni má svo einnig þakka þá sögulegu staðreynd að Bjarna hefur nú tekist að slá fyrra Íslandsmet sitt um skammlífi forsætisráðherra. Hvort feilspor Svandísar leiðir svo til þess að hún verði skammlífasti formaður í sögu VG á svo eftir að koma í ljós, en atburðarrásins sem hún hrinti af stað eykur ekki líkur á að VG nái manni á þing. Ekki græt ég mig í svefn útaf því…,“ skrifar Össur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin tórir enn – Engin sérstök niðurstaða eftir óvæntan fund í Valhöll

Ríkisstjórnin tórir enn – Engin sérstök niðurstaða eftir óvæntan fund í Valhöll
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Listamaður segir Brynjar sjálfan vera með klemmdar rasskinnar – „Hann ætlar nefnilega að sjúga ríkisspenann til æviloka“

Listamaður segir Brynjar sjálfan vera með klemmdar rasskinnar – „Hann ætlar nefnilega að sjúga ríkisspenann til æviloka“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Gunnarsson: Býð mig fram í næstu þingkosningum – flokksmenn velja listann

Jón Gunnarsson: Býð mig fram í næstu þingkosningum – flokksmenn velja listann
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kemur Áslaugu Örnu til varnar eftir „níðskrif“ – Segir listamann upphefja sjálfan sig með „klemmdar rasskinnar af reiði“

Kemur Áslaugu Örnu til varnar eftir „níðskrif“ – Segir listamann upphefja sjálfan sig með „klemmdar rasskinnar af reiði“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Ef við náum ekki tökum á þessum málum strax eftir næstu kosningar þá er ekkert víst að það verði aftur snúið“

„Ef við náum ekki tökum á þessum málum strax eftir næstu kosningar þá er ekkert víst að það verði aftur snúið“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Margir haft samband við Höllu Hrund sem útilokar ekki að fara í framboð

Margir haft samband við Höllu Hrund sem útilokar ekki að fara í framboð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórhildur Sunna hafnar að hafa brotið persónuverndarlög – Skjáskot sem bárust þingflokknum hafi ekki farið í dreifingu

Þórhildur Sunna hafnar að hafa brotið persónuverndarlög – Skjáskot sem bárust þingflokknum hafi ekki farið í dreifingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Góð lögga, slæmt stríð

Góð lögga, slæmt stríð