Þingmenn Framsóknar segja vel koma til greina að skattleggja hagnað fyrirtækja og arðgreiðslur sérstaklega – leggja á hvalrekaskatt – þega vaxta- og þóknanatekjur viðskiptabankanna tryggja þeim mikinn hagnað á sama tíma og almenningur í landinu þarf að taka á sig auknar byrðar af ýmsu tagi. Seðlabankinn og vaxtastefna hans fær harkalega gagnrýni og hann er sagður hafa valdið húsnæðisskorti og búsifjum.
Þingmennirnir Ágúst Bjarni Garðarsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifa í aðsendri grein á Eyjunni að við séum nú í tímabundnu ástandi sem kalli á óvenjulegar tímabundnar aðgerðir. Þau segja það upplifun fólks að ekki séu allir að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að rétta kúrs þjóðarskútunnar og ekki megi vanmeta þá upplifun. Þau leggja til að tekjur af hvalrekaskatti verði notaðar til að styðja með enn markvissari hætti en nú er gert við þá hópa sem nú standi í miðjum ólgusjó, annað sé hreinlega ósanngjarnt.
„Það er staðreynd að við þurfum að einbeita okkur betur að barnafjölskyldum. Það er hreinlega lýðheilsumál, því ekki viljum við sjá þennan aldurshóp brenna upp í báða enda fyrir fimmtugt sem yrði samfélagslega mjög dýrt,“ skrifa þau.
Þau segja engan halda á fríspili í þessum slag; ekki ríkið, ekki sveitarfélög, ekki Seðlabankinn og ekki fyrirtækin í landinu. Ábyrgðin er okkar allra. „Rörsýn Seðlabankans hefur verið of mikil og of mikill skortur er á sýn á stóru myndina, heildarsamhengi hlutanna til framtíðar, og hvert við erum raunverulega að stefna. Við þurfum framtíðarsýn og þora að sjá fyrir okkur hvernig við ætlum að hafa hlutina eftir 2, 3, 5 eða 10 ár. Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa haft verulega neikvæð áhrif á framboðshlið húsnæðis og hert lánþegaskilyrði hafa það einnig, en gera það á öðrum enda. Annars vegar er dýrt að byggja íbúðir vegna hárra vaxta og hins vegar er erfitt að selja íbúðir vegna hertra lánþegaskilyrða Seðlabankans. Það sjá allir að þetta gengur ekki upp og hefur letjandi áhrif á uppbyggingaraðila og þar með fasteignamarkaðinn sem er alls ekki það sem við þurfum núna. Það er skammgóður vermir að pissa í skó sinn.“
Grein þeirra Ágústs Bjarna og Hafdísar Hrannar í heild má lesa hér.