fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Upprisa Viðreisnar

Eyjan
Föstudaginn 27. september 2024 08:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærsta hagsmunamál landsmanna er fyrir undirrituðum endanleg innganga í ESB og upptaka evru. Ekki er hægt fyrir okkur að taka upp evru, nema við verðum fyrst fullgilt ESB-aðildarríki. Við erum í reynd 80-90% í ESB, í gegnum EES-samninginn og þátttöku í Schengen-samkomulaginu. Við erum þó með öllu áhrifalaus innan ESB, höfum enga setu við borðið, þar sem við erum ekki fullt og formlegt aðildarríki.

Með inngöngu næðum við því ekki aðeins aðgangi að evru, til að tryggja okkar fjárhagslega öryggi, fyrirsjáanleika, vissu um stöðu okkar, tryggingu fyrir því að skuldir okkar gætu ekki vaðið upp, jafnvel margfaldast, eins og hér gerist í krónu-hagkerfinu, heldur fengjum við okkar eigin kommissar, ráðherra, eins og öll hin aðildarríkin, hvert bara einn, stór sem smá, 6 þingmenn á Evrópuþingið, setu í öllum helztu nefndum og ráðum, auk neitunarvalds í öllum helztu málum. Þetta er stærsta hagsmunamál Íslendinga á þessum tímum og til framtíðar.

Eini stjórnmálaflokkurinn, sem skilur þessa stöðu og er tilbúinn til að berjast fyrir fullri ESB-aðild og evru í næstu kosningum, er Viðreisn. Forystumenn flokksins og flokksmenn allir eiga heiður skilinn fyrir það.

Gallinn á gjöf Njarðar er bara sá að Viðreisn hefur enn ekki burði til að ná því fylgi sem þarf til að tryggja aðgang að völdum og framgang stefnumála. Ástæðan er sú að stefnumál flokksins eru í of þröngum stakki, þó að fín séu, jafn langt og þau ná.

Til að tryggja stóraukið fylgi og traustan aðgang að völdum og viðhaldi þeirra, í minnst 2-3 kjörtímabil, en það er sá tími sem þarf til að brjóta upp gömul og úrelt valda- og sérhagsmunakerfi og klíkur hér og innleiða nútímalega og framfarasinnaða stjórnarhætti, þarf flokkurinn að stokka upp og útvíkka sín stefnumál, líka stjórn flokksins og breyta nafni til áherzlu þessarar upprisu.

Kosningar 2025 – hugmyndir að eflingu og styrkingu stöðu og áhrifa Viðreisnar

  1. Nýr grundvöllur verði lagður
    Grundvöllur verði lagður til að tryggja C 40-50.000 atkvæði (20-25%), og 13-16 þingmenn, 2025, svo og 4-5 ráðherra, með sérstakri áherzlu á (1) efnahagsmál (ESB, evra, lágvextir), (2) umhverfismál (vernd jarðar; láðs, lofts og lagar – dýra-, náttúru- og umhverfisvernd) (3) menntamál (sterk staða PISA, menntaskóli fjórir vetur), (4) heilbrigðismál (forvarnir, hollusta; heilbrigðiskerfi verði ekki umfram allt til að lækna, heldur og ekki síður til að fyrirbyggja sjúkdóma), og svo (5) velferðarmál eldri borgara (tekjuskattleysi frá 75 ára aldri).
  2. Þetta verði gert með uppstokkun/útvíkkun baráttumála og nýju/auknu forustuliði
    Til viðbótar við núverandi „frjálræðis- og jafnréttisgeira“ komi breiður og öflugur grænn geiri.
    Og, svo sérstök stefnumörkun til að tryggja eldri borgurum aukinn rétt og aukna velferð, einkum með skattleysi frá 75 ára aldri (fjármagnstekjuskattur haldist þó)
    Leitað verði til fyrrverandi eða núverandi alþingismanna, annarra flokka, sem hafa nú þegar mikilvæga reynslu og sitt eigið persónufylgi, og standa sterklega fyrir grænni stefnu, en eru ósáttir við sína núverandi stöðu, svo og til annarra framúrskarandi manna, sem njóta virðingar, velvildar og fylgis, hver á sínu sviði, um samstarf innan vébanda C. Þannig komi inn í C 7-9 ný þingmannsefni.
    Hugmynd undirritaðs er að nafni flokksins verði breytt í Græn Viðreisn og að formenn C verði 2 við þessar breytingar, í stað eins, karl og kona, eins og tíðkast m.a. í Þýzkalandi. Sama gildi um varaformenn.    
  3. Kosningamál yrðu þessi helzt
    1. ESB/evra til að tryggja bezta mögulega efnahagslegan grundvöll; stöðugleika, fyrirsjáanleika og lágmarksvexti.Þjóðarbúið gæti sparað 400 milljarða á ári.
    2. Veruleg hækkun auðlindagjalda (30% af hagnaði sjávarútvegsfyrirtækja, að greiddum sköttum)
    3. Sama bankagjald (sama)
    4. Stórfelld efling menntunar. Sterk staða í PISA (meðal 10 efstu).
    Almennt menntun er feyki þýðingarmikil. Menntaskóli verði aftur 4 vetur.
    5. Sama, heilbrigðismál. Áherzla á upplýsingagjöf, menntun og áróður um heilbrigt líferni og góða hollustuhætti. Forvarnir. Barátta gegn yfirþyngd m.m. Heilbrigðismál gangi ekki helzt út á að lækna sjúka, heldur að        fyrirbyggja að fólk verði sjúkt. Nýtt átak verði gert í íþrótta- og heilsuræktarmálum.
    6. Sama umhverfismál. Hvalir, rjúpa, lundi, selir (eiga að vera friðaðir, en eru það ekki) verði friðuð. Blóðmerahald og loðdýrarækt verði bannað.Veiðar á villtum dýrum verði endurskoðaðar í anda aukinnar dýravelferðar. Hreinkýr verði ekki veiddar meðan þær eru mjólkandi. Haglabyssur bannaðar. Áherzla flutt á náttúrulegt og dýravænt dýrahald (BIO) til manneldis (Astrid Lindgren, Lex Lindgren 1987).
    7. Sama löggæsla; bann við vopnaburði í þéttbýli og háar sektir. Dæmdum brotamönnum verði vísað úr landi eftir afplánun og þeir settir á bannlista.
    8. Sókn í orkumálum. Vindorka komi sterklega inn. Sjávarfallaorka verði skoðuð og nýtt sem allra fyrst (Færeyingar eru þar langt komnir). Leyfisferlar stórlega einfaldaðir. Sókn samhliða í almennri umhverfisvernd.
    9. Tvöfalt hærra verðlag varnings hér verði kannað/greint. Lausna leitað til aukinnar samkeppni til að tryggja lægra vöruverð. Þrýst verði á um uppstokkun kostnaðarsamra og úreltra heildsölukerfa og hvatt til beins innflutnings frá verksmiðjum. „Beint úr verksmiðju í búð.“ Stuðningur við innkomu erlendra smásölukeðja (LIDL, ALDI?)
    10. Vísitölu- og vaxtakerfi verði skoðuð og stokkuð upp. Húsnæðiskostnaður tekinn út.
    11. Stjórnarskrá endurskoðuð að vilja meirihluta þjóðarinnar (jafnt vægi atkvæða, auðlindirnar tilheyri þjóðinni).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Stýrir frumkvöðlanámi í kannabisrækt

Stýrir frumkvöðlanámi í kannabisrækt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þorgerður Katrín: Ríkisstjórnin vildi gefa firðina um aldur og ævi – Sjálfstæðisflokkurinn tekur hagsmuni bakhjarla fram yfir stefnuna

Þorgerður Katrín: Ríkisstjórnin vildi gefa firðina um aldur og ævi – Sjálfstæðisflokkurinn tekur hagsmuni bakhjarla fram yfir stefnuna
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ætlar ekki í formannsslaginn – „Ég er ekki að hætta í stjórnmálum“

Ætlar ekki í formannsslaginn – „Ég er ekki að hætta í stjórnmálum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lenya Rún kjörin formaður Ungra Pírata

Lenya Rún kjörin formaður Ungra Pírata
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorgerður Katrín: Hafa þá allir fjármálaráðherrar íslenska lýðveldisins verið handónýtir?

Þorgerður Katrín: Hafa þá allir fjármálaráðherrar íslenska lýðveldisins verið handónýtir?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Spyr hvort Davíð muni biðjast afsökunar á ærumeiðingum – fékk sjálfur fleiri orlofsdaga en Dagur

Spyr hvort Davíð muni biðjast afsökunar á ærumeiðingum – fékk sjálfur fleiri orlofsdaga en Dagur