fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Eyjan

Borgar sig að vinna í þágu borgarbúa: Launahæsti borgarfulltrúinn með 1.920.430 kr. – Þá er stjórnarseta ótalin

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. september 2024 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur borgað sig að vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi, og þá sérstaklega ef fulltrúar bæta við sig setu í nefndum, allt að þremur, og jafnvel setu í stjórnum fyrirtækja sem borgarfulltrúar eiga föst sæti í. 

Á vef Reykjavíkurborgar má sjá heildarlaunakostnað borgarfulltrúa, en launakostnaður þeirra og þóknanir annarra kjörinna fulltrúa taka breytingum til samræmis við launavísitölu. Grunnlaunin miða við þróun launavísitölu frá marsmánuði 2013 og uppfærast í janúar og júlí ár hvert. Launin sem hér um ræðir eru frá 1. júlí síðastliðnum.

Ekki er tekin afstaða  til vinnuframlags og/eða mætingar borgarfulltrúa á fundi, en leggja má huglægt mat á slíkt með lestri fundargerða borgarinnar. 

Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa 1.130.008 kr.

Borgarfulltrúar eru 23 talsins og varaborgarfulltrúar eru átta talsins. Um er að ræða greiðslur í sex liðum: grunnlaun, formennskuálag, forseti og oddvitar, borgarráð, þrjár nefndir og starfskostnaður.

Allir borgarfulltrúar fá grunnlaun sem greiðslu, 1.053.896 kr. hver,  og starfskostnað, 76.112 kr. Hver til að mæta öllum persónulegum kostnaði vegna starfsins.

Tíu þeirra fá að auki greiðslu undir einum lið og átta þeirra fá greiðslu undir tveimur liðum.

Átta þeirra fá greitt formennskuálag upp á 263.474 kr.
Einn borgarfulltrúi fær greitt 526.948 kr. sem forseti og oddviti, þrír aðrir fá greitt 263.474 kr. undir sama lið.

17 fá greiðslu fyrir setu í borgarráði. Dagur B. Eggertsson fyrrum borgarstjóri fær hæstu greiðsluna, 421.558 kr., átta fá greiðslu upp á 263.474 kr. Undir þessum lið og átta fá 63.234 kr.

Fyrir setu í þremur nefndum fá átta borgarfulltrúar 263.474 kr. 

Laun og starfskostnaður varaborgarfulltrúa 28% lægri

Laun átta varaborgarfulltrúa eru 737.727 kr. Og allir fá greiddan starfskostnað, 76.112 kr. 

Einn fær greiðslu sem forseti og oddviti, 263.474 kr., einn fær 63.234 kr. Greiddar fyrir setu í borgarráði og fimm fá greiðslu fyrir setu í þremur nefndum, 263.474 kr. 

Stjórnarmennska í fyrirtækjum gefur aukalega

Borgarfulltrúar fá fasta mánaðarlega þóknun fyrir stjórnarmennsku í Félagsbústöðum hf., Strætó bs., Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs. (borgarstjóri er formaður stjórnar), Faxaflóahöfnum sf., Malbikunarstöðinni Höfða hf., SORPU bs., Orkuveitu Reykjavíkur, Brú lífeyrissjóði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varamenn í umræddum stjórnum fá greitt fyrir hvern setinn fund. Almannavarnanefnd greiðir aðeins fyrir setna fundi. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fær ekki greitt fyrir stjórnarsetu en varamenn í stjórninni fá greitt fyrir þá fundi sem þeir sitja. Fyrir svæðisskipulagsnefnd og aðrar nefndir Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er einnig greitt fyrir setna fundi. Þær tölur eru því allar breytilegar milli mánaða. 


Skýringar á launagreiðslum

Launagreiðslur og álag á laun er skýrt nánar með eftirfarandi hætti á vef Reykjavíkurborgar:

Borgarfulltrúi á rétt á 25% álagi á laun ef hann gegnir formennsku í fagráði/borgarstjórnarflokki eða ef hann situr í þremur eða fleiri fastanefndum.

  • Borgarfulltrúi sem situr í borgarráði á rétt á 25% álagi á laun, kjörinn varamaður á rétt á 6% álagi og formaður borgarráðs á rétt á 40% álagi.
  • Forseti borgarstjórnar á rétt á 25% álagi á laun.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 1.193.242.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur ráðum) kr. 1.393.482.
  • Laun og starfskostnaður borgarfulltrúa með 2*25% álagi (s.s. vegna setu í borgarráði og öðrum þremur ráðum) kr. 1.656.956. 
  • Laun og starfskostnaður 1. varaborgarfulltrúa með 6% álagi (varamaður í borgarráði) kr. 877.073.
  • Laun og starfskostnaður 1. varaborgarfulltrúa með 25% álagi (s.s. vegna setu í þremur ráðum) kr. 1.077.313.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorgerður Katrín: Afsölum ekki fullveldinu heldur beitum því til að styrkja okkur í samstarfi við aðrar þjóðir

Þorgerður Katrín: Afsölum ekki fullveldinu heldur beitum því til að styrkja okkur í samstarfi við aðrar þjóðir
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ekki sátt um nýtt merki Pírata í Kópavogi – Mögulega brot á höfundarrétti Kópavogsbæjar

Ekki sátt um nýtt merki Pírata í Kópavogi – Mögulega brot á höfundarrétti Kópavogsbæjar