fbpx
Mánudagur 26.ágúst 2024
Eyjan

Ólafur Karl ráðinn aðstoðarforstjóri KAPP

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 26. ágúst 2024 15:07

Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri KAPP.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri KAPP. Ólafur mun styðja Frey Friðriksson forstjóra og eiganda KAPP, við daglegan rekstur ásamt því að bera ábyrgð á uppbyggingu og rekstri erlendrar starfsemi félagsins. Á síðasta ári fjárfesti sjóðurinn IS HAF í 40% eignarhlut félagsins, sem er liður í vaxtaráformum KAPP.  Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

KAPP er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP hefur framleitt og selt OptimICE krapavélar og RAF sprautusöltunarvélar um allan heim með góðum árangri. OptimICE er fljótandi krapaís sem framleiddur er úr sjó um borð í skipum og leysir af hólmi hefðbundinn flöguís. 

KAPP metur svo að mikil tækifæri eru fyrir vörur félagsins að bjóða félögum í sjávarútvegi í Bandaríkjunum, Kanada og í Alaska og er ráðning Ólafs liður í þeirri vegferð.

Ólafur þekkir vel til í sjávarútvegi eftir 9 ára starf hjá Marel, þar sem hann hefur meðal annars leitt þjónustusvið og vöruþróun fiskiðnaðar. Síðastliðin 2 ár hefur Ólafur starfað sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel og framkvæmdastjóri Marel á Íslandi. 

,,KAPP er afar flott fyrirtæki, sem byggir á sterkum grunni og hefur skýr vaxtarmarkmið. Orðspor félagsins er sterkt og byggir á góðum gildum ásamt öflugu starfsfólki og eignarhaldi. Ég hlakka mikið til að kynnast fyrirtækinu betur og því öfluga fólki sem þar starfar ásamt því að styðja við næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. Tækifærin eru fjölmörg þar sem KAPP getur orðið leiðandi í að tryggja jákvæð áhrif á virðiskeðju matvæla í heiminum í framtíðinni,“ segir Ólafur. 

„Við eigendur og stjórn KAPP fögnum því að fá svona öflugan liðstyrk við félagið. Reynsla Ólafs mun nýtast vel til frekari vaxtar KAPP,” segir Freyr Friðriksson, forstjóri fyrirtækisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Óvænt tíðindi varðandi auð Donald Trump

Óvænt tíðindi varðandi auð Donald Trump
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aftur eða aldrei aftur?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aftur eða aldrei aftur?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skólamál: Gagnrýni á nýtt námsmatskerfi af pólitískum toga

Skólamál: Gagnrýni á nýtt námsmatskerfi af pólitískum toga
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skólamál: Gervigreind getur orðið mikilvægt tæki fyrir kennara til að aðlaga námsefni að ólíkum þörfum nemenda

Skólamál: Gervigreind getur orðið mikilvægt tæki fyrir kennara til að aðlaga námsefni að ólíkum þörfum nemenda
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Ofdrykkjumenningin á Alþingi skýrir margt

Svarthöfði skrifar: Ofdrykkjumenningin á Alþingi skýrir margt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: 1150 ár

Björn Jón skrifar: 1150 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skólamál: Framlög ríkisins til námsgagnagerðar hafa skroppið saman um 2/3 frá 1991

Skólamál: Framlög ríkisins til námsgagnagerðar hafa skroppið saman um 2/3 frá 1991