fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Eyjan

Stýrivextir verða óbreyttir

Eyjan
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 08:30

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Þar er bent á að verðbólga hafi aukist lítillega frá síðasta fundi nefndarinnar eftir að hafa hjaðnað fram eftir ári. Undirliggjandi verðbólga sé enn mikil og verðhækkanir séu á breiðum grunni þótt húsnæðisliðurinn vegi enn þungt. Verðbólguvæntingar hafi einnig lítið breyst og haldist yfir markmiði.

„Hægt hefur á innlendri eftirspurn undanfarið ár í takt við aukið peningalegt taumhald. Nokkur spenna er þó enn til staðar í þjóðarbúinu og hefur lítið dregið úr henni frá maífundi nefndarinnar. Horfur eru því á að það geti tekið nokkurn tíma að ná fram ásættanlegri hjöðnun verðbólgu,“ segir í tilkynningu bankans.

Peningastefnunefnd telur að núverandi aðhaldsstig sé hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið en þrálát verðbólga og kraftur í innlendri eftirspurn kalla á varkárni. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Sagan endurtekur sig – stjórnarandstaðan leggst lágt eins og 2009-2013

Orðið á götunni: Sagan endurtekur sig – stjórnarandstaðan leggst lágt eins og 2009-2013
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Demókratar sækja að Trump nema einn þingmaður þeirra – Hann fer aðrar leiðir

Demókratar sækja að Trump nema einn þingmaður þeirra – Hann fer aðrar leiðir