fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Erna Hrund stýrir útflutningi á Collab

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 5. júlí 2024 10:06

Erna Hrund Hermannsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erna Hrund Hermannsdóttir hefur verið ráðinn verkefnastýra útflutnings á virknidrykknum Collab og verður jafnframt sölustjóri Collab á Norðurlöndunum.

Í tilkynningu kemur fram að sala á Collab er hafin í Danmörku og Finnlandi og hafa móttökur verið jákvæðar, en drykkurinn hefur þegar slegið rækilega í gegn á Íslandi. Erna Hrund tekur nú við útflutningsverkefninu sem Gunnar B. Sigurgeirsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri, og samstarfsfólk hans hóf og byggir ofan á því góða starfi sem þar hefur verið unnið.

Erna Hrund stundar MBA nám við Háskóla Íslands og er með diplómur í vörumerkjastjórnun og stafrænni markaðssetningu.  Hún hefur starfað hjá Ölgerðinni frá árinu 2010 og hefur sinnt starfi vörumerkjastjóra frá árinu 2016, síðustu fjögur ár hjá dótturfélaginu Danól. Hún býr að viðamikilli reynslu af vörumerkjauppbyggingu á ólíkum mörkuðum og hefur í gegnum störf sín öðlast mikla þekkingu á mörkuðum Norðurlanda.

„Ég tek við þessu verkefni með mikilli ánægju og ég hlakka til að takast á við þær áskoranir sem bíða mín. Collab hefur fengið góðar undirtektir á þeim mörkuðum sem drykkurinn hefur verið kynntur og þau tengsl sem ég hef myndað á Norðurlöndunum munu koma sér vel í þeirri spennandi vegferð sem bíður,“ segir Erna Hrund.

„Það er fengur að fá Ernu Hrund í þetta starf enda hefur hún sýnt í störfum sínum sem vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni og Danól að hún tekst á við nýjar áskoranir og verkefni af einurð og krafti. Útflutningur á Collab er rétt að byrja og Erna Hrund tekur við krefjandi starfi sem ég er sannfærður um að hún á eftir að sinna vel,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.

Erna Hrund hefur þegar hafið störf sem verkefnastjóri útflutnings og sölustjóri á Norðurlöndum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Samfylkinguna hafa fórnað grunngildum og svara gagnrýni með gaslýsingum og hroka – „Dapurleg örlög jafnaðarflokks“

Segir Samfylkinguna hafa fórnað grunngildum og svara gagnrýni með gaslýsingum og hroka – „Dapurleg örlög jafnaðarflokks“