Það hefur kynt undir umræðunni að Stefan Ingves, fyrrum seðlabankastjóri, sagði að Svíar eigi að skipta krónunni út fyrir evruna.
Magdalena Andersson, fyrrum forsætisráðherra, fagnar umræðunni sem fer fram nú í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins en þær fara fram á sunnudaginn.
B.T. hefur eftir Rasmus Gudum-Sessingø, sérfræðingi hjá Jyske Bank, að þetta sé umræða sem blossi upp í hvert sinn sem sænska krónan eigi í vök að verjast og almenningi finnist hann búa í hagkerfi með veikburða gjaldmiðil. Vörur, keyptar erlendis séu dýrari en áður, og þetta valdi vaxandi óánægju með efnahagsstefnuna.
Hann benti á að kosturinn við að hafa sænsku krónuna sé að hún sé aukaverkfæri sem sé hægt að nota til að hafa stjórn á hagkerfinu. Þar sem sænska hagkerfið búi við miklar sveiflur sé hægt að bregðast hraðar við með því að stýra gjaldeyrisvaraforðanum.
Hann benti einnig á að fasteignir séu stór hluti af sænska hagkerfinu og því komi það illa við fólk þegar vextirnir hækka eins mikið og þeir hafa gert síðustu misserin.
Ef skipt sé yfir í fastgengisstefnu, tryggi það töluverðan stöðugleika, líka á krísutímum.
Svíar kusu um hvort taka ætti upp evruna 2003 og þá voru 55% kjósenda andvígir því en 42% fylgjandi.