fbpx
Mánudagur 21.apríl 2025
Eyjan

Tómas Ingvason skrifar: „Drengurinn minn grátbað um hjálp vegna andlegrar líðan sinnar þegar hann var lokaður inni í klefa á hrauninu“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 2. júní 2024 17:30

Sonur Tómasar lést á Litla Hrauni fyrir skemmstu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fréttamiðlum í gær mátti lesa að ráðherra í ríkisstjórn Íslands telur mikilvægt að farið sé vandlega yfir verkferla þegar lögregla beitir valdi gegn borgurum landsins. Þetta kemur í kjölfar þess að nokkrir kjósendur hans fengu yfir sig piparúða þegar þeir mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund. Ráðherrann segist nú hafa gefið út fyrirmæli til ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis að fara ætti yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu í svona málum.

Það er gott þegar kjörnum fulltrúum okkar stendur ekki á sama um fólkið í landinu. Það eru hinir kjörnu fulltrúar sem eiga að gæta að hagsmunum almennings og tryggja að valdinu sé ekki gefinn laus taumurinn gegn sínum eigin borgurum. En þess vegna velti ég fyrir mér, af hverju er ekki farið yfir ferla þegar fólk deyr í fangelsum? Af hverju er ekki farið yfir ákvarðanir lögreglu þegar ungir drengir eru frelsisviptir án dóms og laga og settir inn á Litla hraun í kjölfar ásakana sem ekki hafa verið rannsakaðar? Er það ekki rannsóknarefni í sjálfu sér?

Drengurinn minn grátbað um hjálp vegna andlegrar líðan sinnar þegar hann var lokaður inni í klefa á hrauninu. Hjálpina var hvergi að fá og daginn eftir var hann allur.

Pólitíkin er söm við sig. Vinstri sinnaður ráðherra kallar auðvitað eftir rannsókn þegar hans eigið fólk verður fyrir piparúða (vegna óláta). Þetta er fólkið sem ráðherrann vill halda sem stuðningsmönnum sínum áfram.

En hvað vill ráðherrann gera fyrir fanga, fíkla og aðstandendur þeirra? Sem faðir tveggja drengja sem báðir hafa tapað sinni lífsbaráttu í þessu kerfi verð ég að lýsa yfir miklum vonbrigðum með okkar kjörnu fulltrúa. Stjórnmálamenn sem í orðu kveðnu segjast vera fulltrúa mannúðar og réttlætis en láta grafalvarlegt ástand í málefnum fanga og fíkla sér í léttu rúmi liggja ættu að íhuga erindi sitt vel og vandlega. Það er í það minnsta mín skoðun.

 

Tómas Ingvason

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Lærum af Japönum

Thomas Möller skrifar: Lærum af Japönum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðmundur Ingi Kristinsson: Eitt barn á bið er einu barni of mikið – getur snúist upp í fjölskylduharmleik

Guðmundur Ingi Kristinsson: Eitt barn á bið er einu barni of mikið – getur snúist upp í fjölskylduharmleik
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvar á Ísland heima í tollastyrjöld?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvar á Ísland heima í tollastyrjöld?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er þríklofinn og engin samstaða

Orðið á götunni: Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er þríklofinn og engin samstaða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Við eigum ekki að framleiða bíla og avókadó á Íslandi

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Við eigum ekki að framleiða bíla og avókadó á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Telur sægreifana ætla að ná yfirráðum yfir Stöð 2, Vísi og Bylgjunni

Telur sægreifana ætla að ná yfirráðum yfir Stöð 2, Vísi og Bylgjunni