Í aðdraganda forsetakosninga hefur Eyjan boðið nokkrum helstu frambjóðendum að koma í viðtal í hljóði og mynd og kynna framboð sín og fyrir hvað þeir standa, lýsa sinni sýn á embættið og hlutverk forseta Íslands. Einnig eru þeir spurðir um afstöðu sína gagnvart valdheimildum forseta við mismunandi kringumstæður og við hvaða aðstæður þeir sæju fyrir sér að vísa málum til þjóðarinnar, auk þess sem farið verður yfir feril þeirra að einhverju marki og það hvernig ferill þeirra og reynsla nýtist þeim í embætti forseta Íslands.
Viðtölin verða birt á Eyjunni næstu tvær til þrjár vikur, tvö til þrjú viðtöl í viku. Þau verða einnig aðgengileg á Hringbrautarrás Sjónvarps Símans í opinni dagskrá, auk þess sem hægt verður að hlusta á þau sem hlaðvörp. bæði hér á Eyjunni og á Spotify.
Þeir frambjóðendur sem mæta til leiks á Eyjunni eru:
Arnar Þór Jónsson, Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Ekki hefur fengist staðfesting frá Katrínu Jakobsdóttur á því að hún hafi tök á að þiggja boð um að koma í viðtal.
Birtingarröð viðtala er af handahófi og það er Halla Tómasdóttir sem ríður á vaðið.
Hér má sjá viðtalið í heild.