fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

„Almennu launafólki verður gert að bera eitt byrðarnar“

Eyjan
Föstudaginn 1. mars 2024 13:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

VR segir atvinnurekendur ekki hafa fallist á axla ábyrgð á verðhækkunum og hafi hafnað sjálfsögðum krfum um forsenduákvæði í kjarasamningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá VR þar sem gerð er grein fyrir þeirri ákvörðun VR og LÍV að slíta sig frá samráði breiðfylkingar í kjaraviðræðum við SA.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Viðræðunefnd VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna (LÍV) hefur fundað stíft í vikunni og farið yfir stöðuna í kjaraviðræðum. Eins og kunnugt er slitu VR og LÍV sig frá samstarfi á vettvangi breiðfylkingar sem einnig var mynduð SGS, Eflingu og Samiðn. Í kjölfarið funduðu samninganefndir VR og LÍV og mynduðu sérstaka viðræðunefnd til að halda viðræðum áfram. Trúnaðarráð VR kom einnig saman í vikunni til að ráða ráðum sínum.

Að mati viðræðunefndar standa út af mikilvæg atriði sem varða félagsfólk VR og LÍV og verður að leiða til lykta svo hægt sé að ljúka kjarasamningagerð. Við upphaf viðræðna milli breiðfylkingarinnar og SA var rætt um breiða kjarasamninga sem myndu vera í líkingu við þjóðarsátt með það að markmiði að koma böndum á verðbólguna og stuðla að ásættanlegu vaxtastigi. Greindir voru fjórir samhangandi þættir sem gætu náð því markmiði, það er að segja hóflegar launhækkanir, endurreisn stuðningskerfa launafólks í gegnum vaxta- og barnabætur, sterk forsenduákvæði svo endurskoða megi samninga ef markmið þeirra ganga ekki eftir og víðtæk sátt um að koma í veg fyrir verðlagshækkanir. Til viðbótar hefur það verið mat VR og LÍV að ná þurfi tökum á húsnæðismálum og treysta varnir fyrir bæði húsnæðiseigendur og leigjendur.

VR og LÍV féllust á að fara fram með hóflegar kröfur um launahækkanir í þessu samhengi. Af þessum atriðum standa eingöngu hóflegar launahækkanir eftir. Verði það niðurstaðan er ljóst að almennu launafólki verður gert að bera eitt byrðarnar af því að ná verðbólgunni niður, sem það átti ekki þátt í að stofna til. Enn fremur er hætt við að markmiðin náist ekki þar sem atvinnurekendur hafa ekki fallist á að axla ábyrgð á verðhækkunum og hafa skellt skollaeyrum við sjálfsögðum kröfum um sterk forsenduákvæði.

Á vettvangi VR og LÍV eru einnig ýmis sérmál sem ekki hefur gefist færi á að ræða. Má þar nefna atriði sem lúta að starfsmenntamálum og starfsreynslu ungmenna, en einnig samninga varðandi kjör starfsfólks í flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli en þar er starfað eftir vinnufyrirkomulagi sem þekkist hvergi annars staðar á íslenskum vinnumarkaði.

VR og LÍV hafa óskað formlega eftir því við ríkissáttasemjara að hann hlutist til um viðræður við SA vegna kjarasamninga félaganna. Það er áríðandi að hefja viðræður þegar í stað um þau atriði sem að framan greinir og ná samstöðu um kjarasamninga til næstu ára.

Félagsfólk LÍV telur ríflega 47 þúsund að VR meðtöldu og er því stærsta samband launafólks á Íslandi. Í viðræðunefnd sitja fyrir hönd VR Ragnar Þór Ingólfsson, Bjarni Þór Sigurðsson, Halla Gunnarsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Selma Björk Grétarsdóttir og Þórir Hilmarsson og fyrir hönd Landssambands ísl. verzlunarmanna Eiður Stefánsson.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu