Við eðlilegar kringumstæður myndi dómur af þessu tagi hafa mikil pólitísk áhrif í Bandaríkjunum en líklegt má teljast að í tilfelli Trump þá verði það ekki svo því Donald Trump er ekki eins og aðrir bandarískir stjórnmálamenn. Það hefur ítrekað komið í ljós.
Ef við förum aftur til 2016 þá sagði Trump að hann gæti skotið manneskju á Fifth Avenure í New York án þess að það myndi fæla kjósendur frá honum. Þessi ummæli gleymast ekki og kannski eru þau bara rétt.
Enginn stjórnmálamaður hefur á síðari tímum komið jafn mikið á óvart og Trump. Í nýafstöðnu forvali í Iowa valtaði hann yfir andstæðinga sína og það sama gerðist í New Hampshire. Það virðist engu máli skipta að hann hefur verið ákærður fyrir 91 lögbrot í fjórum ríkjum, þar á meðal fyrir að hafa reynt að breyta niðurstöðum forsetakosninganna 2020.
Fyrr á árinu var hann dæmdur til að greiða rithöfundinum E. Jane Carroll 8,3 milljónir dollara í miskabætur.
En sá dómur virðist ekki hafa haft nein áhrif og líklega mun dómurinn frá á föstudaginn heldur ekki hafa nein áhrif á stuðningsfólk Trump.