Biden er 81 árs og Trump er 77 ára. Það er því óhætt að segja að val Bandaríkjamanna um næsta forseta standi á milli tveggja aldraðra manna og má færa fyrir því rök að aldur þeirra sé farinn að hafa áhrif á hugræna getu þeirra.
Skýrslan sem um ræðir var gerð í tengslum við sérstaka rannsókn á meintum tengslum Biden og sonar hans, Hunter Biden, við spillingarmál. Niðurstaðan er að ekki sé tilefni til að ákæra forsetann.
En það sem hefur vakið mesta athygli er að skýrsluhöfundar segja að Biden hafi lýst sjálfum sér sem „eldri manni með lélegt minni“.
Ekki bætir úr skák fyrir Biden að skoðanakannanir benda til að Trump muni bera sigur úr býtum í kosningunum í nóvember ef Biden verður andstæðingur hans. En það er engan uppgjafartón að greina hjá Biden sem heldur fast í þá fyrirætlun sína um að verða forsetaframbjóðandi Demókrata í haust.
En hvað gerist ef hið ótrúlega gerist og Biden ákveður sjálfur að hætta við framboð? Þessar spurningu var velt upp á vef Sky News nýlega.
Þar var bent á að aðeins Dean Phillips, frá Minnesota, etji kappi við Biden í forvali flokksins fyrir forsetakosningarnar. Hann er þó ekki talinn eiga neina möguleika í þeirri baráttu.
Nú þegar hafa nokkrar forkosningar farið fram og sigraði Biden í þeim öllum. Þess utan er framboðsfresturinn í mörgum ríkjum liðinn. Enn er hægt að skrá framboð sitt í 11 ríkjum og Washington D.C. en fresturinn rennur út á föstudag í þremur þeirra.
Ef Biden tilkynnir nú að hann sé hættur við framboð þá hafa aðrir enn tækifæri til að skrá sig og fá nafn sitt á kjörseðilinn. En þótt þeir geti það, þá geta þeir ekki tryggt sér meirihluta kjörmanna úr því sem komið er.
Þá kæmi til kasta landsfundar Demókrataflokksins sem fer fram í ágúst. Þar myndu vongóðir flokksmenn á borð við Kamala Harris, varaforseta, og Gavin Newsom, ríkisstjóra í Kaliforníu, væntanlega reyna að sannfæra fundarmennina 4.000 um ágæti sitt til að hljóta útnefningu þeirra. Það yrði einfaldlega kosið á landsfundinum um hver verður forsetaframbjóðandi flokksins.