fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Gunnar Þorgeirsson: Danir hlæja að okkur þegar við segjum þeim að við borðum jarðarber og bláber allan ársins hring á Íslandi

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 12. febrúar 2024 14:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Íslandi er aldrei skortur á neinu, ekki einu sinni jarðarberjum eða bláberjum, sem eru árstíðabundnar vörur og frændum okkar Dönum og Svíum dettur ekki í hug að gera kröfu um að séu í verslunum yfir veturinn. Við Íslendingar framleiðum heilnæmustu kjötafurðir í heimi og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, spyr hvort ekki sé eðlilegt að gera sömu kröfur um heilnæmi innflutts kjöts. Hér á landi séu ekki notaðir hormónar eða sýklalyf, sem notað er í ómældu magni í ríkjum sem framleiði ódýrari landbúnaðarafurðir en við. Það sé hins vegar kostnaðarsamt að halda landinu í byggð. Gunnar er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins á Eyjunni.

Markaðurinn - Gunnar Þorgeirsson - 4.mp4
play-sharp-fill

Markaðurinn - Gunnar Þorgeirsson - 4.mp4

„Við sem þjóð gortum okkur af því að hafa landið í byggð en það er ansi kostnaðarsamt að hafa landið í byggð og þá er spurningin hvernig nálgumst við það að hafa landið í byggð,“ segir Gunnar.

En mun ekki aukin krafa um gott aðgengi að matvælum úr héraði styrkja íslenskan landbúnað?

„Heilnæmustu kjötvörur sem framleiddar eru í heiminum eru framleiddar á Íslandi og í Noregi. Við erum ekki að nota hormóna eða sýklalyf eða neitt. Það er nánast núll. Svo þegar við berum okkur saman við þessi ríki sem framleiða þetta talsvert ódýrara en við erum að gera. Í þetta er dælt hormónum og sýklalyfjum alveg ómælt. Ég segi líka: Ef innlend framleiðsla á að uppfylla einhver ákveðin skilyrði, verðum við þá ekki að gera sömu kröfur á innfluttu afurðirnar? Er okkur bara alveg sama hvað kemur inn af því að það er ódýrt?

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér :

Einnig er hægt að hlusta á Spotify eða hlaðvarpsþjónustu Google:

Þurfum við ekki alla vega að gera kröfu um að það komi skýrt fram á umbúðum, eða á sölustað,  hvers konar framleiðsla þetta er? Neytendur hafa verið að kvarta undan því hér að þeir séu að kaupa eitthvað sem þeir halda að sé íslenskt. Svo kemur í ljós að það er bara íslenskt af því að það var flutt hingað óskorið og skorið eða sett í einhverja maríneringu hér á Íslandi og pakkað hér.

„Þessi löggjöf, eða innleiðing á regluverki, kemur náttúrlega frá þessu frábæra fyrirbæri, Evrópusambandinu, sem þú nefndir, af því að það mega ekki vera neinar viðskiptahindranir þannig að það er nóg bara að marínera kótilettur og þá geta þær verið allra þjóða kvikindi. Þetta er svo víðáttugalið,“ segir Gunnar og bætir því við að bændur hafi talað fyrir því og séu að vinna að upptöku merkis eins og Svíar, Norðmenn og Finnar séu með; Från Sverige og Nyt Norge. „Svo er finnska merkið sem ég get bara ekki sagt því það er svo erfitt.“

Hann segir Dani nokkuð sér á parti í þessum efnum. „Þeir setja bara danska fánann á sína vöru. Punktur. Og það eru allir Danir sem treysta því að ef það er danskur fáni á vörunni þá er hún dönsk. Það er bara eitthvað í hugarfarinu. En þarna vantar okkur eitthvað, bæði neytenda megin og framleiðenda megin, virðingu fyrir innlendri framleiðslu og hugarfari gagnvart innlendri framleiðslu. Ég veit ekki hvort við séum orðin of góðu háð. Það er aldrei skortur á neinu á Íslandi, ekki einu sinni á árstíðabundinni vöru. Þú getur keypt jarðarber 365 daga á ári. Þú getur keypt bláber 365 daga á ári og ef þú segir þetta við Dani hlæja þeir bara að okkur og segja: Í alvörunni? Þetta eru árstíðabundnar vörur,“ segir -Gunnar og skellir upp úr. „Það er alveg sama með Svía. Þeir segja: Við borðum ekki bláber á veturna, þau eru ekki til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?
Hide picture