Washington Post skýrir frá þessu. Blaðið hefur eftir þremur heimildarmönnum að Trump hafi fundað með ráðgjöfum sínum til að ræða möguleikann á að setja 60% toll á kínverskar vörur.
„Þetta getur ógnað og gert út af við og brotið alþjóðaviðskipti upp í svo stórum stíl að við höfum ekki séð annað eins öldum saman,“ hefur blaðið eftir Erica York, aðalhagfræðingi hjá hugveitunni Tax Foundation.
Fólk í herbúðum Trump hefur ekki tjáð sig um málið en Trump hefur sjálfur lýst því yfir opinberlega að hann hafi í hyggju að þrengja að vöruinnflutningi frá Kína ef hann nær kjöri. Hann hefur lýst því yfir að hann muni gefa heimild til að breyta viðskiptastöðu Kína gagnvart Bandaríkjunum en það gæti orðið til að tollar á viðskipti á milli ríkjanna muni hækka um allt að 40%.
Norski hagfræðingurinn Harald Magnus Andreassen sagði í samtali við Dagbladet að þessar fyrirætlanir ættu að valda áhyggjum og sagði þetta geta verið ávísun á hörmungar fyrir bandaríska neytendur. „Þetta mun koma niður á bandarískum fyrirtækjum sem flytja inn hálfframleiddar vörur frá Kína. Það mun draga úr samkeppnishæfi þeirra í Bandaríkjunum og um allan heim. Þau geta örugglega hækkað verðið til bandarískra viðskiptavina en það ýtir aftur undir verðbólgu,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að það verði ekki bara Kína og Bandaríkin sem finni fyrir afleiðingunum af þessu. Þetta muni hafa í för með sér að önnur ríki grípi til „svipaðra heimskulegra aðgerða“ og þá sérstaklega Kína.