Ef vinnumarkaðinum tækist að semja um núll prósent launahækkanir næstu 12 mánuði þá gæti það haft afgerandi áhrif á þróun efnahagsmála. Þetta segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, í viðtali við Spursmál á mbl.is.
„Ég held að það hlyti að hafa allnokkur og eiginlega talsvert mikil áhrif. Við sáum þetta auðvitað gerast í þjóðarsáttinni frægu í upphafi 10. áratugar og það kom svolítið til, ekki af góðu, að það var orðið ástand sem var ekki lengur við unað. Rekstrargrundvöllur fyrirtækja var orðinn mjög erifður og það skildu allir að það hafði ekki orðið nein kaupmáttaraukning hjá launþegum og svo framvegis. Viljinn var mjög gagnkvæmur þá,“ segir Jón Bjarki.
Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka fram til ársins 2027 er hins vegar gert ráð fyrir að laun hækki um 6,5% á þessu ári. En Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur viðrað þá hugmynd að engar launahækkanir verði næstu 12 mánuði en á móti þá dragi allir opinberir aðilar og fyrirtæki innan SA til baka gjaldskrár- og verðhækkanir sem tóku gildi um áramótin.
Jón Bjarki segir stemninguna í umræðum um kjaramál vera að breytast til hins betra:
„Menn hafa haft af því áhyggjur að flestir vildu að „hinir“ myndu taka á sig þessar byrðar. En ég tek undir það með þér að það eru meiri teikn á lofti, maður heyrir það úr fleiri áttum að það sé vilji til að vera með í þessu átaki og passa upp á að verða ekki einhvern veginn sá sem hleypir þessu í háa loft. Athyglisverð þessi ummæli Vilhjálms og við skulum sjá hverju fram vindur í þessari umræðu. Hann er búinn að kasta þessari hugmynd þarna út og er svolítið að skora á opinberu aðilana og fyrirtækin auðvitað, smásölufyrirtækin og aðra að leggjast á þessa ár.“