Pawel Bartoszek, sitjandi borgarfulltrúi fyrir hönd Viðreisnar, verður ekki sakaður um annað en hafa húmorinn í lagi. Hann birti færslu nú í morgun þar sem hann er í keppnisham í óvenjulegri íþrótt og segir það allt vera lið í því að fólk tengi betur við hann sem stjórnmálamann.
„PR deildin segir að ég þurfi að pósta fleiri mannlegum sögum af mér til virka viðkunnanlegur og til að fólk tengi betur við mig. Hér er ég á Íslandsmóti í því að leysa Rubiks-kubb blindandi,“ skrifar Pawel en ekki fylgir með sögunni hvernig stjórnmálamanninum farnaðist í mótinu.