fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Salóme ráðin framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justikal

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 24. ágúst 2023 13:18

Salóme Guðmundsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justikal og gengur jafnframt inn í stofnendateymi félagsins. Salóme mun leiða sókn og stefnu fyrirtækisins inn á erlenda markaði og bera ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu starfseminnar, eisn og segir í fréttatilkynnine en Salóme tekur til starfa næstu mánaðamót.

Ráðning Salóme er liður í þeirri vegferð að styrkja stjórnendateymi Justikal og undirbúa félagið fyrir sókn á erlenda markaði.

,,Það er spennandi áskorun að ganga til liðs við Justikal á þessum tímapunkti í vexti félagsins. Fyrirtækið hefur náð góðri fótfestu á Íslandi og alla burði til þess að vaxa hratt erlendis. Framundan eru mikil tækifæri til sóknar og við erum með metnaðarfull plön. Ég hlakka til að stíga af krafti inn í nýtt hlutverk,“ segir Salóme.Justikal gerir lögmönnum og öðrum aðilum meðal annars kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla og er hannað til að hraða meðferð mála, gera þau skilvirkari og aðgengilegri fyrir málsaðila.Salóme starfaði áður sem forstöðumaður í viðskiptaþróun hjá PayAnalytics. Hún hefur frá árinu 2021 einnig starfað sem stjórnarmaður og ráðgjafi hjá Eyri Venture Managment og leiðbeinandi við MBA nám Háskólans í Reykjavík. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri Icelandic Startups árin 2014 til 2021. Þar áður var hún forstöðumaður Opna háskólans í HR. Salóme er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk AMP stjórnendanámi við IESE í Barcelona árið 2019. Salóme hefur víðtæka reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum í íslensku atvinnulífi og situr m.a. í stjórn Sýnar hf., Viðskiptaráðs Íslands og Eyrir Ventures ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur