Ásmundur Tryggvason, sem lét af störfum hjá Íslandsbanka síðastliðinn laugardag, er með tólf mánaða uppsagnarfrest sem framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta. Vísir greinir frá þessu en það þýðir að starfslokasamningur hans hljóðar að minnsta kosti upp á 47 milljónir króna en það voru árslaun Ásmundar samkvæmt ársreikningi bankans í fyrra. Til samanburðar voru árslaun Birnu Einarsdóttur, fyrrum bankastjóra, 48,3 milljónir króna.
Hjá bankanum gildir sú regla að framkvæmdastjórar eru með 12 mánaða uppsagnarfrest en forstöðumenn fá sex mánuði en tilkynnt var um brotthvarfs eins þeirra, Atla Rafns Björnssonar, sem stýrði fyrirtækjaráðgjöf bankans, í gær.
Eins og komið hefur fram hefur Jón Guðni Ómarsson, nýr bankastjóri Íslandsbanka, lýst því yfir að uppsögnum stjórnenda vegna útboðshneyklis bankans sé þar með lokið og hann hyggist nú freista þess að endurheimta það traust sem bankinn tapaði við framkvæmdina misheppnuðu.
Nánar fjallað um málið á vef Vísis