Vodafone hefur virkjað 5G þjónustu á 100 sendum um landið sem er hluti af verkefninu 5G allan hringinn sem hófst haustið 2020. 5G tæknin býður upp á tækifæri á að ná enn meiri hraða og stöðugleika í nettengingum bæði heima fyrir og hjá fyrirtækjum.
„Starfsmenn Vodafone hafa verið í vinnu síðasta árið um land allt við virkjun á 5G sendum. Einnig hefur Vodafone unnið að eflingu á 4G sendastöðvum ásamt uppfærslu á öðrum sendum. 5G er nýjasta og hraðasta kynslóð farsímanetsins og eykur hraða á netinu til muna. Uppbyggingin stórbætir því tengingar fyrir landsmenn og ferðamenn. Vodafone mun setja upp 100 5G senda til viðbótar á næstu 18 mánuðum um allt land,“ segir Sigurbjörn Eiríksson, forstöðumaður Innviða hjá sýn.
„Við erum ánægð með þann árangur sem við höfum náð í uppbyggingu á 5G um land allt fyrir okkar viðskiptavini. 5G netið er allt að 10 sinnum hraðara en 4G netið og býður upp á möguleika að deila miklu magni af gögnum í rauntíma. 5G tæknin veitir til dæmis fyrirtækjum möguleika á að nýta hlutanetstækni til rakningar og mælinga í rauntíma og hámarka skilvirkni. Hún tryggir jafnframt sumarbústaðareigendum sítengingu á dreifbýli og einstaklingum að streyma miklu magni gagna á miklum hraða. Uppbygging 5G tenginga um allt land er liður í framúrskarandi þjónustuvegferð Vodafone og fögnum við þeim árangri að hafa virkjað 100 senda á svona stuttum tíma,“ segir Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vodafone.