Í lögfræðiáliti sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) létu LEX lögmannstofu vinna vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að banna tímabundið veiðar á langreyðum er komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin hafi farið í bága við lög og ekki verið reist á nægjanlega traustum lagagrundvelli.
Í tilkynningu frá SFS kemur fram að samtökin hafi leitað eftir áliti lögmannsstofunnar þann 21. júní síðastliðinn, degi eftir að hin umdeilda ákvörðun var kynnt.
„Í minnisblaði þessu hefur með rökstuddum hætti verið komist að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun ráðherra að banna tímabundið veiðar á langreyðum við Ísland árið 2023 hafi farið í bága við lög og ekki verið reist á nægjanlega traustum lagagrundvelli,“ segir í áliti LEX.
Helstu niðurstöður að hæpið sé að tiltekið ákvæði í lögum hafi veitt Svandísi heimild til að setja reglugerðina sem bannað veiðarnar fyrirvaralaust. Ákvörðun ráðherra hafi því ekki verið reist á viðhlítandi lagaheimildum og stenst því ekki stjórnarskrá, að mati LEX.
Þá sé ólíklegt að það standist kröfur um stjórnskipulegt meðalhóf að banna fyrirvaralaust veiðarnar með því að gefa út reglugerð, án fyrirvara eða aðlögunartíma. Þá sé sú aðferð, að setja reglugerð um bannið í stað þess að fylgja málsmeðferð stjórnsýslulaga, tæplega í samræmi við svonefnda stjórnarfarsreglu en hún felur í sér að stjórnvaldi er bannað að misbeita valdi við val á leiðum til úrlausnar á máli.
Þá er bent á að ekki hafi verið óskað eftir sjónarmiðum Hvals hf., meðal annars um álit þeirra sérfræðinga sem voru kallaðir fyrir fagráð um velferð dýra. Þannig hafi ekki verið gætt að andmælarétti sem sé mælt fyrir um í stjórnsýslulögum.
Að ofantöldu sé ljóst að mati lögmannstofunnar á reglugerð Svandísar, sem byggði á niðurstöðu fagráðsins, ekki verið reist á nægilega traustum grundvelli. Með því að „kollvarpa stjórnsýsluframkvæmd í einu vetfangi“, eins og sagt er í skýrslunni, hafi ráðherra farið í bága við viðmið sem lögð hafi verið til grundvallar í stjórnsýslurétti.