Reykjavíkurflugvöllur er í dag eins og fylgismenn áframhaldandi flugvallar í Vatnsmýrinni boðuðu í flugvallarkosningunni 2001. Varaborgarfulltrúi segir flugvallarsinna vera að flytja „víglínuna“ um staðsetningu byggðar við flugvöllinn.
Pawel Partoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, birti í gær færslu á facebook síðu sinni og rifjar upp að rétt fyrir flugvallarkosninguna birtist mynd í Morgunblaðinu sem sýndi hvernig borgin gæti þróast eftir því hvaða leið yrði farin.
Þremur leiðum var stillt upp. Ein þeirra gekk út á að flugvöllurinn hyrfi úr Vatnsmýrinni og önnur að hann yrði áfram. Sú þriðja var millileið sem fólst í því að einni flugbraut yrði haldið opinni.
Pawel, sem birtir myndina úr Morgunblaðinu með færslu sinni, segir að nú, 22 árum eftir flugvallarkosninguna, séum við að vinna með sviðsmyndina „Endurbættur Reykjavíkurflugvöllur“ sem sé einmitt sú sviðsmynd sem flugvallarsinnar kynntu sem sína framtíðarsýn.
Í þeirri sviðsmynd var lofað að ein flugbrautin myndi víkja og að byggja mætti þar sem hún var. Þetta var tillaga Flugmálastjórar og samgönguráðherra.
Nú, 22 árum síðar, er búið að byggja á einu byggingarsvæði af þeim þremur sem falla undir þessa tillögu flugvallarsinna. Um er að ræða Hlíðarendasvæðið við íþróttasvæði Vals. tekist er á um svæði tvö og fluggarðarnir standa enn.
Pawel segir ljóst að reynt hafi verið að færa „víglínuna“ þar sem kosningin á sínum tíma hafi alls ekki snúist um Skerjafjörð og Hlíðarenda. Talsmenn flugs í Vatnsmýri hafi sjálfir boðið þá skika fram sem byggingarsvæði og sagt borgina vel geta þróast áfram í kringum völlinn þótt hann yrði áfram.
Nú kveði við annan tón. Sagt sé að byggðin trufli flugvöllinn.