Trump vísar því á bug að hann verði einræðisherra ef hann nær kjöri. Hann kom inn á þetta á kosningafundi í Iowa í gærkvöldi þegar fundargestur spurði hann út í þetta.
„Nei, nei. Ekki nema fyrsta daginn,“ sagði Trump þegar hann var spurður hvort hann yrði einræðisherra.
Þar vísaði hann til þess að á fyrsta degi sínum í embætti muni hann nota völd sín sem forseti til að loka landamærunum að Mexíkó og til að heimila fleiri boranir eftir olíu.
Það eru ekki aðeins Demókratar sem hafa varað við að Bandaríkin geti breyst í einræðisríki ef Trump nær kjöri, því sumir samflokksmenn hans hafa haft sömu varnaðarorð uppi.