Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristíndardóttir Gunnarsdóttir, var handtekin um helgina eftir að dyraverðir komu að hann hálfsofandi inn á salerni, þar sem hún hafði dvalið nokkra stund.
Hún hefur nú beðist afsökunar á athæfinu sem hafi ekki verið henni til sóma. Hún hafi drukkið af mikið í gleðskap og brugðist illa við þegar dyraverðir höfðu afskipti af henni.
Hún segir í yfirlýsingu:
„Þetta mál er mér ekki til sóma og mér þykir það mjög leiðinlegt. Ég var búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyraverðir opnuðu hurðina á klósettinu ,ég var dónaleg og streittist á móti. Óháð öllu öðru, var hegðun mín ekki til fyrirmyndar. Ég hef beðið hlutaðeigandi afsökunar á framkomu minni. Það eru forréttindi að vera kjörinn fulltrúi, því fylgir ábyrgð og mér þykir leitt að hafa brugðist svona við.“