fbpx
Laugardagur 18.janúar 2025
Eyjan

Helga Þórey, Ari og Sara til Expectus

Eyjan
Mánudaginn 6. nóvember 2023 12:07

Helga Þórey Björnsdóttir, Ari Kvaran og Sara Húnfjörð Jósepsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín þau Helgu Þóreyju Björnsdóttur, Ara Kvaran og Söru Húnfjörð Jósepsdóttur. Þau munu öll starfa sem ráðgjafar í viðskiptagreind (BI).

Helga Þórey Björnsdóttir er sérfræðingur í viðskiptagreind með bachelor-gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún fór síðan til Danmerkur þar sem hún nam við Danmarks Tekniske Universitet (DTU) og lauk þaðan meistaragráðu í Mathematical Modeling and Computation. Helga Þórey hefur undanfarin ár starfað sem sölufulltrúi hjá Mjólkursamsölunni í öllum sumar- og jólafríum.

Ari Kvaran hefur m.a. verið aðstoðarkennari í líkindareikningi og tölfræði við Háskóla Íslands auk þess sem hann tók nýverið þátt í nýsköpunarverkefni á vegum SÁÁ við að þróa frumgerð að hugbúnaði til aðstoðar fólki sem bíður innlagnar á Vog. Ari er með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, hann var í skiptinámi í sömu grein við Koera University og lauk M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði og stjórnun frá Danmarks Tekniske Universitet. Ari er mikið fyrir útivist og hefur að eigin sögn verið hlaupaóður undanfarin ár en nýjasta áhugamálið er klifur sem hann hyggst stunda af kappi.

Sara Húnfjörð Jósepsdóttir, ráðgjafi í viðskiptagreind, lauk B.Sc. í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. Engineering – Mathematical Modelling and Computation, frá Tækniháskólanum í Danmörku (Danmarks Tekniske Universitet). Hún var í hlutastarfi sem forritari fyrir vélaverkfræðideild DTU samhliða námi þar sem hún aðstoðaði við að þróa nýja prótótýpu á viðmóti fyrir notkun í iðnaði. Sumarið 2021 starfaði Sara hjá Heilbrigðistæknisetri Háskólans í Reykjavík (Medical Technology Center) sem aðstoðarmaður rannsókna þar sem hún vann úr heilbrigðisgögnum.

Expectus er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni, rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 og í dag starfa þar hátt í 40 manns, öll sérfræðingar á sínu sviði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Klappir og ICR í samstarf

Klappir og ICR í samstarf
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Forstjórinn reynir að slá á ólguna innan Sýnar með bréfi til starfsmanna – „Engin umræða hefur átt sér stað í minni tíð um lokun fréttastofu Stöðvar 2“

Forstjórinn reynir að slá á ólguna innan Sýnar með bréfi til starfsmanna – „Engin umræða hefur átt sér stað í minni tíð um lokun fréttastofu Stöðvar 2“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris ráðin framkvæmdastjóri samstarfs hjá Klöppum

Íris ráðin framkvæmdastjóri samstarfs hjá Klöppum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

700 milljón króna jákvæður viðsnúningur Hofgarða – DV og miðlar Fjölmiðlatorgsins reknir með hagnaði

700 milljón króna jákvæður viðsnúningur Hofgarða – DV og miðlar Fjölmiðlatorgsins reknir með hagnaði
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir oflof Björns Bjarnasonar um feril Bjarna Ben innistæðulaust

Segir oflof Björns Bjarnasonar um feril Bjarna Ben innistæðulaust
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Andspyrnuhreyfingin kraumar af reiði yfir niðurlægingu Dags

Orðið á götunni: Andspyrnuhreyfingin kraumar af reiði yfir niðurlægingu Dags
Eyjan
Fyrir 1 viku

Play skýtur föstum skotum í hagræðingatillögum – „Persónuleg söfnun starfsmanna á vildarpunktum er óeðlilegur hvati

Play skýtur föstum skotum í hagræðingatillögum – „Persónuleg söfnun starfsmanna á vildarpunktum er óeðlilegur hvati
Eyjan
Fyrir 1 viku

Opinn fundur um tjáningarfrelsi og framtíð fréttamennsku

Opinn fundur um tjáningarfrelsi og framtíð fréttamennsku