fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Eyjan

Segir útspil ráðherra í fangelsismálum vera vanhugsað kjördæmapot

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 27. september 2023 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýjum Dagfarapistli á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra verði ekki kápan úr því klæðinu að setja sjö milljarða í að reisa nýtt fangelsi í stað Litla-Hrauns.

Skrifar Ólafur að svo virðist sem Guðrúnu sé efst í huga að fangelsið verði í kjördæmi hennar líkt og Litla-Hraun. Hann vekur athygli á því að hvergi sé minnst á sjö milljarða í nýtt fangelsi í nýframlögðu fjármálafrumvarpi, né heldur sé gert ráð fyrir slíkum útgjöldum í fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Hann telur Guðrúnu með þessu vera að reyna að ganga í augu kjósenda, enda styttist í næstu kosningar og þá munar um sjö milljarða framkvæmdir í kjördæminu.

Ólafur segir ljóst að staðsetning nýs fangelsis á sama stað og Litla-Hraun stendur, sé engan veginn sú hagstæðasta, enda sé staðurinn í 45 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. Miklu eðlilegra sé að stækka fangelsið á Hólmsheiði en að ráðast i gríðarlegar framkvæmdir fyrir austan fjall og finna nýtt „krúttlegt“ nafn á nýja fangelsið.

Engum heilvita manni dytti í hug að hanna og skipuleggja nýtt 100 rýma fangelsi frá grunni 45 kílómetra frá höfuðborginni ef hagkvæmni þess og notagildi væru höfð að leiðarljósi. Þá má velta því fyrir sér hvort æskilegasta þróunin í fangelsismálum hér á landi sé að byggja einatt meira húsnæði til að nauðungarvista fólk fremur en að leita lausna í aukinni samfélagsþjónustu dæmdra og öðrum leiðum en að loka fólk inni í læstum klefum,“ skrifar Ólafur.

Hann segir þetta vanhugsaða útspil Guðrúnar dæmi um kjördæmapot, sem ráðherrar og þingmenn séu enn fastir í. „Þessi gamaldags „hrepparígur“ grasserar enn og er hreint ekki boðlegur.“

Ólafur telur að Guðrúnu verði ekki að ósk sinni um að byggja sjö milljarða fangelsi í kjördæmi sínu og reiknar með því að skynsemin muni ráða þegar málið fái umfjöllun fjárveitingarvaldsins þannig að mannvirkinu verði valinn staður á Hólmsheiði og ríkissjóði þannig spöruð óþarfa útgjöld. Ekki megi gleyma hagræðinu af því fyrir lögreglu og réttargæslumenn, að ógleymdum aðstandendum fanga, að þurfa ekki að aka austur fyrir fjall.

Dagfara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Skilningslaus ríkisstjórn – hver á núna að halda uppi húsnæðisverði á Íslandi?

Svarthöfði skrifar: Skilningslaus ríkisstjórn – hver á núna að halda uppi húsnæðisverði á Íslandi?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““
Eyjan
Fyrir 1 viku

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda