fbpx
Laugardagur 15.mars 2025
Eyjan

Vilhjálmur fær nóg og skiptir um skoðun – „Ekki einni einustu þjóð hefur dottið til hugar að koma svona fram við þegna sína“

Eyjan
Föstudaginn 22. september 2023 14:11

Vilhjálmur Birgisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er kominn með nóg af íslensku krónunni. Telur hann rétt að þjóðin fari að meta kosti og galla þess að taka hér upp nýjan gjaldmiðil. Þetta kemur fram í harðorðum pistli sem Vilhjálmur ritar á Facebook.

„Verðum að fá vitra erlenda óháða aðila til að kanna kosti og galla við að taka upp nýjan gjaldmiðil! Eins og allir vita þá eru stýrivextir hér á landi 9,25% og verðbólgan 7,7% og erum við með langhæstu stýrivextina miðað við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Því til viðbótar hafa allar þjóðir sem við miðum okkur við náð mun betur að tækla hækkandi verðbólgu enda fer verðbólga hratt lækkandi erlendis.

Málið er að þetta er ekkert ný saga enda hafa neytendur, launafólk, fyrirtæki og heimilin búið við okurvexti um margra áratugaskeið. Heimilum þessa lands hefur verið misþyrmt í formi okurvaxta og verðtryggingar eins lengi og elstu menn muna. Ekki einni einustu þjóð hefur dottið til hugar að koma svona fram við þegna sína eins og gert hefur verið hér á landi þegar kemur t.d. að þeirri grunnþörf hverrar fjölskyldu að búa í öruggu húsnæði á viðráðanlegum kjörum.“

Hvers vegna þau en ekki við?

Vilhjálmur veltir fram þeirri spurningu hvers vegna neytendum í öðrum Norðurlöndum standi til boða óverðtryggð húsnæðislán á 2-5 prósent vöxtum til 30 ára, en ekki okkur á Íslandi.

„Ég skal fúslega viðurkenna það að ég hef verið talsmaður íslensku krónunnar en nú hef ég skipt um skoðun enda kominn á endastöð með að verja krónuna enda er margt sem bendir til þess að þessi örmynt okkar eigi stóran þátt í þessum miklu efnahagslegu sveiflum. Sveiflum sem ætíð bitna á hinum almenna neytanda og heimilunum í formi okurvaxta, verðtryggingar og fákeppni á öllum sviðum.

Ég held að við séum komin á endastöð með íslensku krónuna sem kostar neytendur og heimilin um eða yfir 200 milljarða árlega. Á Íslandi eru margir gjaldmiðlar í gangi, mörgum stórfyrirtækjum dettur ekki til hugar að gera upp í krónum og gera því upp í erlendum gjaldmiðlum og hafa jú aðgengi að erlendu lánsfé á mun betri kjörum. Síðan er það verðtryggða krónan sem er jú einn sterkast gjaldmiðill í heimi en hann gagnast þeim efnameiri og fjármálakerfinu. Síðan er það íslenska krónan sem almenningi er gert að nota eingöngu og við þekkjum hvaða afleiðingar hún getur haft á neytendur og heimili.“

Gæta þess að sérhagsmunir hafi ekki áhrif

Rétt væri að erlendum óháðum aðila verði farið að kanna kostina og gallana við íslensku krónuna og á sama tíma kosti og galla þess að taka upp nýjan gjaldmiðil, svo sem evru, dollara, dönsku krónuna, norsku krónuna eða eitthvað annað. Þessi greining þurfi að vera gerð af erlendum aðila til að tryggja að hagsmunasamtök hér á landi reyni ekki að hafa áhrif á niðurstöðuna. Hefur Vilhjálmur leitað til Samtaka atvinnulífsins og spurt hvort samtökin og verkalýðshreyfingin geti staðið sameiginlega að þessari greiningarvinnu, enda gífurlegir hagsmuni í húfi.

„Hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir launafólk, neytendur og heimili enda getum við ekki búið við gjaldmiðil sem kostar neytendur og heimilin yfir 200 milljarða á ári. Við getum ekki búið við okurvexti og verðtryggingu og algera fákeppni á öllum sviðum og því er svona úttekt nauðsynleg en hún þarf að vera eins og áður sagði gerð af erlendum óháðum aðilum til að verða marktæk.

Ég fékk ekki skýr svör frá fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hvað þessa hugmynd varðar, en ég tel að víðtækur stuðningur sé við hana innan verkalýðshreyfingarinnar enda tapar enginn á því að slík úttekt sé gerð á möguleikanum á því að taka upp nýjan gjaldmiðil.

Eitt er víst að það er ekki lengur hægt að horfa upp á afleiðingar af okurvöxtum, verðtryggingu og fákeppni sem bitnar ætíð á neytendum og heimilum þessa lands. Íslenskir neytendur og heimili þurfa að fá svör frá virtum erlendum óháðum aðilum hvort íslenska krónan sé sú sem veldur þessum þjáningum sem neytendur og heimili hafa þurft að þola um margra áratugaskeið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Furðar sig á hræsni Sjálfstæðismanna í ljósi sögunnar – „Getur verið að Hildur vilji bara sjálf fá þessi embætti?“

Furðar sig á hræsni Sjálfstæðismanna í ljósi sögunnar – „Getur verið að Hildur vilji bara sjálf fá þessi embætti?“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingmaður segir „fullorðnum smábörnum“ til syndanna

Þingmaður segir „fullorðnum smábörnum“ til syndanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um hvað snýst bandalag?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um hvað snýst bandalag?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Friður sé með yður

Steinunn Ólína skrifar: Friður sé með yður