Birgitta Bjarnadóttir hefur gengið til liðs við Notendalausnir Origo, þar sem hún mun starfa sem rekstrarstjóri (COO). Hún mun taka þátt í stefnumótun, stýra umbótaverkefnum, þróun og innleiðingu ferla ásamt yfirumsjón á rekstrartengdum verkefnum.
Birgitta er með MBM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, MicroMaster gráðu í Supply Chain Management (Stjórnun aðfangakeðjunnar) frá MIT í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Birgitta hefur starfað á heildsölumarkaði í yfir 20 ár en síðustu sjö árin hefur hún gegnt stöðu rekstrarstjóra hjá Danól og Ölgerðinni ásamt því að sitja í stjórn Danól árin 2021-2022. Hún hefur umfangsmikla færni og reynslu af viðskiptum, birgðastýringu og stjórnun.
„Ég er mjög ánægður að fá Birgittu í teymi lykilstjórnenda Notendalausna. Hún býr yfir dýrmætri reynslu og þekkingu á alhliða fyrirtækjarekstri og hefur gott auga fyrir ferlum, kerfisrekstri og umbótum. Birgitta er bæði vandvirk og getur kafað djúpt ofan í hlutina en að sama skapi fljót að koma sér inn í málin og afkastamikil. Við eigum að ávallt að leitast eftir því að gera betur á morgun en í dag og þar mun reynsla og styrkleikar Birgittu nýtast okkur vel,“ segir Jón Mikael Jónasson, Framkvæmdastjóri Notendalausna Origo