fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Eyjan

Jakob Frímann: Óprúttnir aðilar nota stríðið í Úkraínu sem yfirvarp til að okra á íslenskum almenningi

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 16. september 2023 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, segir bíræfna og óprúttna aðila nota stríðið í Úkraínu sem yfirvarp til að okra á okkur almenningi, vextir hafi verið hækkaðir um of að ófyrirsynju.

Ég er bjartsýnn á að það muni verða hér mun auðveldara að draga fram lífið fyrir hina tekjuminni og viðkvæma hópa samfélagsins heldur en það er í dag. Annað getur ekki og má ekki verða,“ segir Jakob  sem er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Markaðurinn - Jakob Frímann Magnússon - 4.mp4
play-sharp-fill

Markaðurinn - Jakob Frímann Magnússon - 4.mp4

Það verður þá bara að breyta hagstjórninni þannig velgengni okkar verði ekki að gildru fyrir tíund þjóðarinnar, eða þá sem tilheyra hinum viðkvæmar hópum, eins og hefur því miður gerst,“ segir Jakob.

Það að fela Seðlabankanum nánast einveldi yfir fjármálum okkar í þessu samhengi er kannski eitthvað sem er dálítið glannalegt, hefði ég talið. Það að skilja svona milli ríkisstjórnar og Seðlabankans, að það sé ekki einhvern veginn hægt að semja um svona millileið milli þess að hinir ríku verði miklu ríkari af svona verðbólgudraugum og -ófreskjum og tilheyrandi vaxtahækkunum, nú er þetta auðvitað ekki einangrað við Ísland, við höfum fengið yfir okkur verðbólgu og vaxtahækkanir sem ég trúi því miður að séu að hluta til gerðar að ófyrirsynju í skjóli fyrst Covid, og svo í skjóli stríðsins í Úkraínu eins og það eigi að skipta rosalegu máli fyrir okkur hér á Íslandi að verið sé að skylmast í gömlu Sovétríkjunum.“

Jakob segist segja þetta með fullri virðingu, vinsemd og meðaumkun með þolendum stríðsins og bætir við: „Það eru einhverjir bíræfnir, óprúttnir, sem nota sér slíkt ástand sem yfirvarp til að okra á okkur.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér :

Einnig er hægt að hlusta á Spotify eða hlaðvarpsþjónustu Google:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?
Hide picture