Á annað hundrað kvenna komu saman í nýju húsnæði Landsbanka í Reykjastræti á opnunarviðburði sem haldinn var í vikunni. „Fjárfestu í þér til framtíðar“ var yfirskriftin þar sem konur af höfuðborgarsvæðinu og alls staðar að af landinu hófu starfsár félagsins sem er jafnframt 25 ára afmælisár félagsins.
„Nýja Landsbankahúsið er stórglæsilegt og tekur sannarlega vel utan um gesti,“ segir Unnur Elva Arnardóttir, formaður FKA, en húsið hefur vakið mikla athygli, vottað og vistvæn hönnun leiðarljósið í öllu ferlinu. „Stórt hús og glæsilegt sem smellpassar fyrir stórt og metnaðarfullt félag,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri félagsins. „Félagið hefur aldrei verið stærra og fjölbreyttara og það var dásamlegt að fá að telja í nýtt, ferskt og brakandi starfsár með nýrri stjórn og félagskonum í Landsbanka Reykjastræti.“
Tíu þúsund fermetrar af fjöri og flottir leiðtogar
„Tíu þúsund fermetrar af fjöri og flottir leiðtogar og stjórnendur innan bankans tóku á móti okkur og það sannaðist enn og aftur hve einlægni er gott stöff,“ segir Andrea glöð í bragði. „Við vorum allar sammála um það eftir að hlustað á Lilju segja frá sinni vegferð og það að fá svona persónulega hvatningu frá henni gerði það að verkum að við fórum heim með kassann út, fullar eldmóði.“
Magnús Jóhann Ragnarsson settist við flygilinn og það var sunginn afmælissöngurinn fyrir Lilju sem fagnaði fimmtugsafmæli sínu nýverið. FKA-konan Svanlaug Jóhannsdóttir, söngkona og framkvæmdastjóri Osteostrong, leiddi hópsöng og fyrirtæki gáfu félagskonum sem duttu í lukkupottinn flotta glaðninga. Borgarleikhúsið bauð í leikhús og Sena gaf miða á Tinu Turner heiðurstónleikana sem verða í Eldborg.
„Þar munu nokkrar af bestu söngkonum Íslands koma saman til að heiðra minningu Tinu Turner og auðvitað eru félagskonur FKA þar innanborðs eins og hún Jóhanna Guðrún sem hefur heldur betur látið til sín taka í viðburðahaldi þessa dagana. Það er ekki bara Costco sem færir okkur jólin snemma í ár því Icewear var sannarlega í jólafíling og kom með kápur, vesti, buxur og úlpu í púkkið þar sem dúnninn setti okkur í stellingar fyrir haustlægðirnar á færibandi en svo er það íslenska ullarfóðrunin, létt og hlý og áhugaverð hjá þeim. Er ég byrjuð að hljóma eins og kynningarstjóri Iðnaðarsýningarinnar?“ spyr Andrea hlæjandi. „Ég hef bara svo gaman að vekja athygli á konunum okkar og þarna var Silla Páls með gjafabréf upp á portrett myndatöku þegar verið var að gleðja konurnar, Sky Lagoon sá til þess að einhverjar gátu farið lóðbeint í þetta dásamlega lón, Skeljungur var með gjafabréf í bíladekur og þetta var opnunarviðburður með dassi af aðfangadagsstemningu. Já, mögulega, og fyrir það er ég þakklát. Gott að gefa, himneskt að þiggja eins og segir á sígilda konfektinu frá Nóa sem allar konur fengu með sér heim ásamt glaðningi frá Halldóri Jónssyni.“
Nóg að verða gömul og nenni ekki að verða gömul og bitur
„Ég hvet konur til að sækja um í félaginu og láta til sín taka og hafði svo gaman af því þegar Lilja spurði salinn: „Hvað gerir maður, stelpur, þegar það er óskað eftir bankastjóra?“ og svaraði í framhaldinu: „ Sækir um!““, segir Andrea sem hvetur konur til að gera nákvæmlega það. „Mér persónulega finnst nóg að verða gömul og nenni ekki að verða gömul og bitur. Ég veit vel að ég er forréttindapía en þarf samt að beiti mig hörðu til að taka upp góða venjur og forgangsraða mér. Við konur verðum að gefa okkur leyfi til að taka virkan þátt, eiga áhugamál, fylgja því sem hjartað raunverulega vill. Þá minnka líkurnar á að við sitjum uppi með eftirsjá í ellinni. Mikilvægi FKA hefur aldrei verið eins brýnt og öflugar deildir, nefndir, ráð og stjórn FKA heldur áfram að styðja kvenleiðtoga í að sækja fram og sameina til aukins sýnileika og þátttöku. Verið hjartanlega velkomnar um borð,“ segir Andrea að lokum.