fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Stafræn markaðssetning: Unnu til fernra alþjóðlegra verðlauna á Global Search Awards

Eyjan
Mánudaginn 28. ágúst 2023 12:20

Hreggviður Magnússon, framkvæmdastjóri The Engine Nordic.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stafræna auglýsingastofan The Engine Nordic, hluti af Pipar\TBWA, vann til fernra alþjóðlegra verðlauna á Global Search Awards, en stofan hlaut samtals 12 tilnefningar fyrir stafrænar herferðir. Verðlaunin endurspegla einstakan árangur stofunnar og nýstárlega aðferðafræði með gögn og stafrænar herferðir. Um er að ræða stór alþjóðleg stafræn verðlaun þar sem auglýsingastofur um allan heim keppast um viðurkenningar. Gullverðlaunin sem stofan vann voru vegna verkefna sem unnin voru í nánu samstarfi með Hertz Iceland, Reykjavik Excursions by Icelandia og DEMICON í Þýskalandi.

Nýnæmi í notkun gagna og fersk nálgun á stafrænum herferðum

Að vinna Global Search Awards er mikill heiður fyrir þá sem vinna í stafrænum auglýsingum, en hún er stærsta stafræna verðlaunahátíðin í heimi. Veitt eru verðlaun fyrir einstakan árangur sem og nýnæmi í ferskri nálgun í uppbyggingu herferða. Meðal þess sem dómnefnd tiltók var hversu framúrstefnulega herferðir væru sem og hversu snjöll hugsun var á bakvið nálgun, gögn og aðferðafræði.

Með þessum árangri fyrir hönd okkar viðskiptavina erum við að eiga okkar farsælasta ár í sögu fyrirtækisins. Verðlaun á European Search Awards og svo fern verðlaun á Global Search Awards setur okkur í fremstu röð stafrænna auglýsingastofa í Evrópu og reyndar víðar. Þetta er einstakur heiður og jafnframt endurspeglar það trausta og góða samstarf sem við höfum átt með Reykjavik Excursions by Icelandia, Hertz Iceland og DEMICON síðastliðið ár.“ segir Hreggviður Magnússon, framkvæmdastjóri The Engine Nordic.

Að fá 12 tilnefningar og vinna gull í fjórum flokkum á Global Search Awards endurspeglar það öfluga starfsfólk sem við höfum og þá aðferðafræði sem við notum. Maður er hrærður yfir þessum árangri og miklu viðurkenningu sem okkar samstarfi er sýnd,“ segir Haukur Jarl Kristjánsson, Performance Director hjá The Engine Nordic.

The Engine veitir ráðgjöf um stafræna markaðssetningu með áherslu á leitarvélar, samfélagsmiðla, og meðhöndlun gagna. Stofan er með starfsstöðvar í Kaupmannahöfn, Ósló og Reykjavík og er hluti af Pipar\TBWA.

Flokkarnir sem stofan vann sigur í eru eftirfarandi:

  • Best Use of Data (PPC) – Reykjavik Excursions
  • Best Global PPC Campaign – Hertz Iceland
  • Best Use of Search – Travel / Leisure (PPC) – DEMICON
  • Best Use of Search – B2B (PPC): Small – Hertz Iceland
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur