Landsvirkjun hagnaðist um114 milljónir Bandaríkjadala, eða 15,6 milljarða króna, á fyrri hluta ársins. Er þetta nokkru minni hagnaður en í fyrra en þar kemur til að hagnaður Landsnets sem selt var á árinu skilaði hluta af niðurstöðu ársins.
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 196 milljónum USD (26,8 ma.kr.), en var 154,3 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um 27,0 prósent þrátt fyrir mjög góða afkomu á síðasta ári.
Rekstrartekjur námu 331,8 milljónum USD (45,5 ma.kr.) og hækka um 36,8 milljónir USD (12,5 prósent) frá sama tímabili á árinu áður.
Nettó skuldir Landsvirkjunar lækkuðu um 182,4 milljónir USD (25 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 665,7 milljónir USD (91,2 ma.kr.).
Handbært fé frá rekstri nam 248,8 milljónum USD (34,1 ma.kr.), sem er 29,7 prósent hækkun frá sama tímabili árið áður.
Á öðrum ársfjórðungi var 125 milljóna USD lánalína endurfjármögnuð til þriggja ára. Kjör lánalínunnar eru hagstæð, eða 45 punktar yfir SOFR millibankavöxtum.
Matsfyrirtækið S&P Global Ratings breytti horfum á lánshæfi Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar og staðfesti BBB+ lánshæfiseinkunn fyrirtækisins.
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Rekstur Landsvirkjunar gengur áfram vel. Hagnaður af grunnrekstri jókst um 27 prósent frá sama tímabili ársins 2022, sem þó var metár í sögu fyrirtækisins. Rekstrartekjur jukust um 12,5 prósent frá fyrri helmingi ársins 2022. Munar þar mestu um tekjur vegna innleystra áhættuvarna, auk þess sem raforkusala var áfram mikil, en á móti kemur verðlækkun á þeim mörkuðum sem raforkuverð til stórnotenda er að hluta til tengt við. Á sama tíma lækkaði rekstrar- og viðhaldskostnaður um 6 prósent frá fyrra ári.
Fjármunamyndun var sterk á tímabilinu, en handbært fé frá rekstri jókst um 29,7 prósent og nam 34 milljörðum króna.
Rekstur aflstöðva gekk vel á fyrri helmingi ársins, en á fyrsta fjórðungi þurfti þó að takmarka afhendingu á skerðanlegri orku til gagnavera og fiskmjölsframleiðenda, þar sem raforkukerfið er nú rekið nærri hámarks afkastagetu.
Eins og við hjá Landsvirkjun höfum ítrekað bent á síðustu ár og misseri ríður á að byggja upp frekari raforkuvinnslu til að uppfylla þá augljósu orkuþörf sem er í samfélaginu vegna orkuskipta og almenns vaxtar í atvinnulífinu. Landsvirkjun vinnur nú hörðum höndum að því að afla tilskilinna leyfa svo fyrirtækinu sé unnt að mæta þessum sjálfsögðu kröfum samfélags og stefnu stjórnvalda.“
Skuldir lækka enn
Fjármunamyndun fyrirtækisins (handbært fé frá rekstri) var sterk á tímabilinu og nam 249 milljónum dollara, sem er 57 milljón dollurum meira en á sama tímabili í fyrra. Nettó skuldir (vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé) hafa lækkað um 182 milljónir Bandaríkjadala frá áramótum og um 274 milljón dollara frá sama tíma í fyrra.
Handbært fé nam 158 milljónum dollara í lok júní 2023 og hefur hækkað um 7 milljónir frá áramótum.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir a eftirspurn eftir raforku sé áfram það mikil að raforkukerfið sé fullselt. Unnið sé að því að afla tilskilinna leyfa fyrir frekari uppbyggingu orkuvinnslu. Þessi mikla eftirspurn hafi vissulega jákvæð áhrif á horfur í rekstri, en afkoma muni einnig halda áfram að litast af verðþróun á alþjóðlegum hrávöru- og orkumörkuðum.