Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, fundaði með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og formanni Verkamannaflokksins. Í færslu á Facebook-síðu þingmannsins kemur fram að kollegarnir hafi rætt leiðina frá stjórnarandstöðu og til ríkisstjórnarinnar en miðað við gengi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum undir forystu Kristrúnar bendir allt til þess að hún verði næsti forsætisráðherra landsins.
„Það er mikils virði fyrir mig að geta leitað til reynslubolta eins og Jonasar. Hann var einn af nánustu ráðgjöfum Gro Harlem Brundtland, utanríkisráðherra í ríkisstjórnum Jens Stoltenbergs og hefur nú sjálfur leitt ríkisstjórn síðan árið 2021. Listin við að leiða sósíaldemókratískan flokk er að finna rétt jafnvægi fyrir samfélagið hverju sinni. Á milli þjóðfélagshópa og landshluta til dæmis – en líka jafnvægi á milli breytinga og varðveislu þess sem vel hefur gefist. Í Noregi hefur það tekist vel og Verkamannaflokkurinn verið stærsti flokkurinn á Stórþinginu frá árinu 1927, algjörlega óslitið. Við getum lært af þeim,“ skrifar Kristrún.
Hún segir Jonas hafa hvatt sig til þess að halda sínu striki og tala fyrir raunhæfum leiðum til að bæta kjör, velferð og efnahag venjulegs fólks. „Atvinnu- og auðlindamál voru ofarlega á baugi og sömuleiðis samhengið á milli skatta og velferðar. Norðmenn eru stoltir af norsku leiðinni við nýtingu náttúruauðlinda og við í Samfylkingunni munum án vafa líta til Noregs þegar við setjum af stað nýtt málefnastarf um atvinnu og samgöngur í haust,“ skrifar formaðurinn.
Þetta er þriðji sitjandi forsætisráðherrann sem Kristrún hittir á rúmum mánuði. Í maí fundaði hún með Aksel V. Johannesen, lögmanni Færeyja, sem og Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur.