Exeter hótelið við Tryggvagötu er á lista Great Place To Work (GPTW) yfir Bestu vinnustaði Íslands, fyrst fyrirtækja hér á landi í hótelrekstri og ferðaþjónustu. GPTW er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu.
Þegar Exeter hafði verið opið sem sjálfstætt hótel í meira en ár, fór að bera á nýjum og krefjandi áskorunum í mannauðsmálum í tengslum við starfsþróun. Eftir að hafa starfað í ár eða lengur í móttöku, fór starfsfólk gjarnan að velta fyrir sér framtíð sinni og hvaða möguleikar væru til þróunar í starfi á jafn litlum vinnustað og Exeter Hotel að sögn Þorkels Óskars Vignissonar, framkvæmdastjóra Exeter Hotel
„Þessi áskorun og köllun kom skýrt fram í GPTW gögnunum okkar og höfum við þurft að leita frumlegra leiða til að gefa starfsfólki ný verkefni, áskoranir og fræðslu fyrir þau til að þróast og halda þeim áhugasömum,“ segir Þorkell Óskar.
Gögnin vísa veginn
„Gögnin hjá Great Place To Work veittu okkur staðfestingu á því að við erum góður vinnustaður að vinna hjá og hvað við erum að gera vel. Jafnframt hafa gögnin gert okkur kleift að greina hvar við getum bætt okkur og gefið okkur skýran vegvísi í þeirri vegferð að verða framúrskarandi vinnustaður fyrir okkar starfsfólk,“ segir hann.
Þar sem að gögnin frá Great Place To Work eru nafnlaus og órekjanleg gefur þessi starfsmannakönnun GPTW hverjum og einum rödd og veitir fólki öryggi til þess að tjá sínar skoðanir á opinskáan máta og dregur á þann hátt upp raunsæja og áreiðanlega mynd af stöðu vinnustaðarins. „Á litlum vinnustað eins og okkar er starfsfólk gjarnan feimið við að tjá sig og oft gleymist að skapa vettvang fyrir fólk til að geta tjáð sig. GPTW könnunin hefur því bæði hjálpað okkur að gefa starfsfólkinu rödd og öryggi til að tjá sig og opnað okkur leiðir til bætingar sem vinnustaður,“ segir Þorkell Óskar enn fremur.