fbpx
Fimmtudagur 13.febrúar 2025
Eyjan

Neytendur geta nú borið saman verð matarkörfunnar milli verslana

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 7. júní 2023 12:50

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vefurinn Verðgáttin er nú kominn í loftið en vefurinn gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar. Verð uppfærast einu sinni á sólarhring samhliða gagnaskilum frá verslunum. Neytendur geta sett upp sína eigin matarkörfu, með því að velja þær vörur og það magn sem hentar þeirra innkaupum. Þannig geta neytendur borið saman verð sinnar matarkörfu á milli verslana.

Verðgáttin er liður í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um að fylgjast náið með þróun verðlags helstu neysluvara í samstarfi við Rannsóknarsetur verslunarinnar. Sem hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamninga á almennum vinnumarkaði studdi menningar- og viðskiptaráðuneytið Rannsóknasetur Verslunarinnar (RSV) um 10 milljónir króna til framkvæmdar verkefnisins. Með Verðgáttinni er aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags aukið og þannig stuðlað að auknu aðhaldi á neytendamarkaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Selur fyrirtækið sem Stefán Einar varði með kjafti og klóm gegn árásum kennara

Selur fyrirtækið sem Stefán Einar varði með kjafti og klóm gegn árásum kennara
Eyjan
Fyrir 2 dögum

ESB er tilbúið með rosalegan mótleik við tollum Trump

ESB er tilbúið með rosalegan mótleik við tollum Trump
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gagnrýnir þvaður og áróður um húsnæðisvandann á Íslandi – „Það er búið að mata þessa mýtu“

Gagnrýnir þvaður og áróður um húsnæðisvandann á Íslandi – „Það er búið að mata þessa mýtu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilmundur skrifar: Sofðu betur, náttúrulega!

Vilmundur skrifar: Sofðu betur, náttúrulega!