Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, á Alþingi í gær hvort til grein kæmi að setja sams konar krónutöluþak á hækkun launa þingmanna og ráðherra og gerð var á almennum vinnumarkaði.
Í andsvari við ræðu Bjarna fór Jóhann Páll yfir það að þegar lög um kjararáð voru felld brott og nýju fyrirkomulagi komið á árið 2019 hafi tilgangurinn m.a. verið að tryggja að kjörnir fulltrúar og æðstu embættismenn yrðu ekki leiðandi í launaþróun hér í landinu, að launaþróunin þeirra yrði svipuð og hjá öðrum. „Nú þegar samið hefur verið um þak á krónutöluhækkanir, bæði á almenna og opinbera vinnumarkaðnum, stefnir í að við hér inni og ráðherrar fáum miklu meiri hækkun en hinn almenni launamaður. Þarna er kerfið ekki að uppfylla yfirlýst markmið heldur er það að rífa ráðherra og æðstu stjórnendur upp í launum langt umfram það sem gengur og gerist á vinnumarkaði,“ sagði Jóhann Páll.
Hann hélt áfram og sagði ráðherra hafa haldið ófáar ræður um ábyrgð vinnumarkaðarins á verðstöðugleika og mikilvægi þess að gæta hófs í launasetningu. „Við heyrðum þetta bara hér rétt í þessu, kunnuglegan söng. En hvað ætlar hæstvirtur ráðherra að gera þegar verðbólgan er yfir 9 prósent, þegar vextir eru þeir hæstu í 13 ár og kjaraviðræður, mjög strembnar kjaraviðræður, fram undan?“
Spurði hann Bjarna hvort stjórnarmeirihlutinn á Alþingi ætlaði að láta það viðgangast að kjörnir fulltrúar og æðstu stjórnendur fái miklu ríflegri launahækkun heldur en kennarinn, sjúkraliðinn eða iðnaðarmaðurinn? „Eða kemur kannski til greina, virðulegi forseti, að setjast niður og að við reynum að ná saman þvert á flokka um að setja sams konar þak á krónutöluhækkunina hjá okkur og samið var um á vinnumarkaði?“
Fram kom hjá Bjarna í umræðunni að til greina kæmi að gera breytingar á fjárhæðum launahækkana til þingmanna og ráðherra, en í júlí stefnir í að laun þingmanna og ráðherra hækki um margfalda þá fjárhæð sem samið var um á almennum vinnumarkaði í samningum sem seðlabankastjóri fagnaði fyrst sem mjög hóflegum en hefur undanfarna mánuði kennt um að valda of mikilli spennu í íslenska hagkerfinu.